Nýhöfn 5

210 Garðabær

Ásett verð: 159.900.000 kr.

Nýhöfn 5
Tegund
Hæð
Stærð
157,599999237061 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
2008
Fermetraverð
1.014.594 kr.

Lýsing

Bòkið skoðun:

Guðrún Hulda Ólafsdóttir, lögmaður og löggiltur fasteignasali sími 8457445 og netfang gudrun@logheimili.is, kynnir í einkasölu: Stórglæsileg og björt lúxus endaíbúð með óskertu sjávarútsýni og bílskúr í fallegu og vönduðu lyftuhúsi í Sjálandi í Garðabæ. Íbúðin er á 2.hæð og er skráð 132,3 fm skv. ÞÍ, aðeins eru þrjár íbúðir í stigaganginum, ein á hverri hæð. Góður bílskúr 25,3 fm skv ÞÍ er á jarðhæð. Samtals eru því skráðir fm skv. ÞÍ 157,6fm. Innangengt úr skúr í geymslu og stigagang.

Húsið er klætt að utan og því viðhaldslétt. Tvennar svalir eru á íbúðinni, einar litlar útsýnissvalir 1,4fm sem snúa í norðaustur yfir sjóinn með útsýni yfir að Esjunni, hinar eru mjög stórar yfirbyggðar, 20fm og snúa í suðvestur með útsýni út á sjó og á Snæfellsjökulinn á milli húsana til norðvesturs.

Almenn lýsing eignar: Gengið er inn í húsið á norðurgafli. Lyftuhús. Bílskúrar fyrir framan hús á jarðhæð. Stæði fyrir framan bílskúr fylgir íbúðinni. Aðeins þrjár íbúðir í stigahúsi og aðeins er ein íbúð á hæð. Lyfta gengur á allar hæðir. Húsið hefur fengið mjög gott viðhald.

Nánari lýsing íbúðar:

Forstofa: Komið er inn í forstofu með þreföldum eikarfataskáp sem nær upp í loft. Gegnheilt amerískt hnotuparket er á gólfi af vönduðustu gerð, mattlakkað. Innfelld halogen lýsing er í lofti.

Alrými/Borðstofa/Eldhús: Innaf forstofunni er mjög stór og rúmgóð borðstofa á hægri hönd. Borðstofan er á milli eldhússins annarsvegar og setustofunar hinsvegar. Mikið veggpláss er í rýminu. Opið inn í eldhús. Eldhús: Eldhúsið er rúmgott með fallegri ljósri viðarinnréttingu. Eldhústæki eru vönduð frá Miele. Mikið skápapláss er í innréttingunni. Efri og neðri skápar eru á einn vegg þar sem ofninn er í vinnuhæð og á hinn vegginn eru neðri skápar og fallegur panoramagluggi þar fyrir ofan með útsýni út á sjóinn og Snæfellsjökul. Svört granítborðplata er á eldhúsbekkjum. Gluggar eru á tvo vegu í rýminu sem gerir eldhúsið sérlega bjart. Innfelld halogen lýsing er í lofti.

Yfirbyggðar svalir: Útfrá eldhúsinu er gengið út á mjög stórar og rúmgóðar yfirbyggðar svalir sem snúa í suður, vestur og norðvestur. Svalirnar eru flísalagðar og þær njóta bæði mikillar sólar og einnig fallegs útsýnis.

Stofa: Frá borðstofunni er opið niður í stofu. Gengið er niður eitt þrep sem setur sérlega fallegan svip á íbúðina. Aukin lofthæð er í stofurýminu. Fallegt glerhandrið skilur á milli borðstofu og setustofu. Stofan er stór og glæsileg með gegnheilu hnotuparketi á gólfi. Gluggarnir eru stórir og skarta þeir glæsilegu útsýni út á sjóinn í áttina að Arnarnesi og að Esju. Litlar svalir eru út frá stofunni út í áttina að sjónum. Innfelld halogen lýsing er í lofti.

Herbergi / sjónvarpsherbergi: Innaf stofunni er mjög rúmgott aukaherbergi/sjónvarpsherbergi. Gengið er upp eitt þrep að herberginu. Gegnheilt hnotuparket er á gólfi.

Baðherbergi/Þvottur: Baðherbergið hefur að mestu verið endurnýjað fyrir nokkrum mánuðum er flísalagt í hólf og gólf með ljósum fallegum flísum. Stór sturta með glerhurðum er í horni baðherbergisins. Hvít innrétting er undir vaski og við hlið spegil. Steinn er á borði og vaskurinn er undirfelldur. Spegillinn fyrir ofan vaskinn er stór með góðri lýsingu. Salernið er upphengt og vatnskassi innfelldur í vegg. Handklæðaofn er á vegg. Þvottaaðstaða í lokuðum skáp: Á bak við hurðina eru tvær stórar spegla rennihurðir sem ganga veggja á milli. Inn í speglaskápnum er mjög gott pláss fyrir þvottavél og þurrkara, mikið af hillum og hirsluplássi og góður kústaskápur.

Hjónaherbergi + fataherbergi: Hjónaherbergið er mjög stórt og rúmgott með gegnheilu hnotuparketi á gólfi. Vel útbúið fataherbergi er innaf hjónaherberginu. Sandblásin glerrennihurð skilur á milli hjónaherbergisins og fataherbergisins.

Geymsla: Á jarðhæðinni er geymslan sem fylgir íbúðinni. Geymslan er 7.9 fm með góðum hillum. Innangengt er úr geymslunni inn í bílskúrinn.

Bílskúr: Sér lokaður bílskúr fylgir með íbúðinni. Bílskúrinn er mjög snyrtilegur með hillum, innréttingu og sjálfvirkum bílskúrshurðaopnara. Bílastæði fyrir framan bílskúr. Tengi fyrir rafhleðslu. Vaskur/heitt og kalt vatn í bílskúr.

Útivistararperla: Göngustígar, ylströnd i næsta nágrenni.

Allar nánari upplýsingar veitir:

Guðrún Hulda Ólafsdóttir, lögmaður og löggiltur fasteignasali

gudrun@logheimili.is

sími: 8457445