Klettsholt 7

806 Selfoss

Ásett verð: 38.900.000 kr.

Klettsholt 7
Tegund
Sumarhús
Stærð
72,6 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
2
Byggingarár
2024
Fermetraverð
535.813 kr.

Lýsing

Miklaborg kynnir: Nýlegt sumarhús sem er 36,3 fm, byggt árið 2024, og gestahúsi sem er 15 fm, byggt árið 2009. Samtals er þetta 51,3 fm samkvæmt Húsnæðis- og mannvirkjastofnun. Á lóðinni er einnig geymsla, um 15 fm, sem er í byggingu. Húsin eru með hitaveitu; aðalhúsið er með gólfhita, en gestahúsið hefur ofnakerfi. Húsin eru klædd með liggjandi báru, nema geymslan sem er í uppbyggingu. Þetta er snyrtileg og vel viðhaldið eign.

Vel staðsett sumarhús og gestahús við Klettsholt 7 í Bláskógabyggð. Húsin standa á fallegri eignarlóð með útsýni yfir Tungufljót.

Bókið einkaskoðun hjá Írisi Örnu, löggiltum fasteignasala í síma 7700500 eða iris@miklaborg.is

Nánari lýsing

Aðalhús: - Samsetning: Eldhús, borðstofa og stofa í alrými, tvö svefnherbergi og baðherbergi.

Forstofa: : Parket á gólfi og fataskápur.

Stofa/eldhús: : Parket á gólfi, falleg eldhúsinnrétting með ísskáp, uppþvottavél, ofni og helluborði. Bjart rými með miklu útsýni og útgengi til suðurs á sólpall.

Svefnherbergi: : Tvö svefnherbergi; eitt með kojum og annað með tvíbreiðu rúmi, bæði með parket á gólfi.

Baðherbergi: : Micosements áferð á gólfi og veggjum, snyrtileg innrétting, upphengt salerni, sturta, og opnanlegur gluggi.

Sólpallur: : Stór sólpallur með fallegu útsýni til suðurs, heitur pottur og útisturta.

Geymsla: 15 fm geymsuskúr sem er í byggingu - ekki skráð í fm tölu.

Bílastæði: : Góð aðkoma með næg bílastæði við húsið, þar er einnig gert ráð fyrir rafhleðslutæki. Jarðvegsskipti hafa verið framkvæmd á bílaplani og lýsing hefur verið sett upp.

GESTAHÚS: :Alrými með parketi á gólfi, þar sem stofa og svefnaðstaða eru í sama rými með góðri lofthæð. :Baðherbergi með salerni og sturtu.

Nánari upplýsingar veitir Íris Arna, löggiltur fasteignasali í síma 7700500 eða iris@miklaborg.is