Ránargata 7

101 Reykjavík

Ásett verð: 74.900.000 kr.

Ránargata 7
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
84,1 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
2
Byggingarár
1929
Fermetraverð
890.606 kr.

Lýsing

Eignamiðlun kynnir:

Björt og vel skipulögð þriggja herbergja íbúð á fyrstu hæð, ásamt útleigueiningu í kjallara, í þriggja íbúða húsi við Ránargötu 7 í Reykjavík. Frábær staðsetning í einni af grónari götum bæjarins. Íbúðin er í göngufæri frá miðbænum og allri helstu þjónustu. Íbúðin er skráð 84,1 fm samkvæmt HMS. Fallegt stafaparket er í eigninni.

Nánari lýsing:

Gengið er inn um sameiginlegan inngang með tveimur íbúðum efri hæðar, fallegur viðarstigi í sameign.

Gangur íbúðar tengir saman allar vistverur og er með parketi á gólfi.

Eldhúsið er bjart með snyrtilegri ljósri innréttingu og eldhúskrók, parket á gólfi.

Stofa og borðstofa með fallegri rennihurð sem aðskilur þær. Önnur þeirra er í dag nýtt sem svefnherbergi. Rúmgóðar og bjartar. Parket á gólfum.

Hjónaherbergið er án skápa og með parketi á gólfi.

Baðherbergið er flísalagt með salerni og sturtu.

Sameiginlegt þvottahús í kjallara.

Í kjallara er 17,1 fm íbúðarherbergi sem getur nýst til útleigu, 8,2 fm eldhús og 4,6 fm baðherbergi.

Sameiginlegur skjólgóður garður er við húsið. Hjólageymsla í læstum undirgangi við húsið.

Viðhaldssaga:

2004: Endurnýjun skólplagna í kjallaragólfi hússins. Lagnir endurnýjaðar í plast út fyrir hús.

2011 : Nýjar svalir teiknaðar og samþykktar fyrir ris og 2. hæð.

2012: Endurnýjað rör í vegg við baðherbergi kjallaraíbúðar. Skolpstammi hússins var myndaður ca. 2021 og var í lagi. Málun utanhúss: steinveggir, gluggar, hurðir, þak - Skipt um glugga í hjólageymslu garðmegin - Nýr öryggissílender settur í útidyrahurð - Rennur og niðurföll endurnýjuð.

2022: Nýr gluggi settur í eldhús kjallaraíbúðar.

2023: Túnþökum skipt út í garði. Trjáfellingar og almenn garðvinna, t.d. ný mold í beð.

2024: Línolíumdúkur í stigagangi djúphreinsaður.

2025: Skipt út þrýstijöfnurum í hitaveituinntaki og hitaveitugrindin yfirfarin.

2026 Utanhússviðgerðir á múr garðmegin. Málari býr sig undir að mála glugga að utan garðmegin.

Það stendur síðan til að fara í rennuskipti garðmegin næsta sumar.

Nánari upplýsingar veita:

Unnar Kjartansson, löggiltur fasteignasali í síma 867-0968 eða unnar@eignamidlun.is

Kjartan Hallgeirsson, löggiltur fasteignasali í síma 824-9093 eða kjartan@eignamidlun.is

***

Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook