Kuggavogur 4

104 Reykjavík

Ásett verð: 64.400.000 kr.

Kuggavogur 4
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
77,3 m²
Herbergi
2
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Byggingarár
2023
Fermetraverð
833.118 kr.

Lýsing

Nýleg og vel skipulögð íbúð við Kuggavog 4, 104 Reykjavík.

Frábær fyrstu kaup! Nýleg rafhleðslustöð fyrir rafbíla við bílastæði fylgir með

Möguleiki á að láta loka svölunum. Tllboð í verkið liggur fyrir

Sérinngangur af jarðhæð

Þvottaaðstaða innan íbúð

Mjög rúmgóð og stór geymsla fylgir

Útsýni til sjávar

Íbúð 101: Er 77,3 fermetra 2ja herbergja íbúð á fyrstu hæð með svölum. Þar af er geymsla 15,4 fermetrar og bílastæði í bílakjallara.

Nánari lýsing: Íbúðin skiptist í forstofu/þvottarými, eldhús við opið alrými/stofu, svefnherbergi og baðherbergi. Útgengi á svalir úr stofu.

Innréttingar: Í eldhúsum og baðherbergjum eru frá þýska framleiðandanum Nobilia og fataskápar frá GKS smíðaverkstæði. Lýsing undir efri skápum í eldhúsum. Speglaskápar eru á aðalbaðherbergjum.

Eldhústæki: Íbúðunum eru vönduð eldhústæki af gerðinni AEG.

Íbúðin er með span helluborði, innbyggðum kæliskáp, innbyggðri uppþvottavél, blástursofni.

Hreinlætistæki: Salernisskál er vegghengd með innbyggðum vatnskassa. Sturtur eru með flísalögðum botni og hertu sturtugleri. Hreinlætistæki eru frá Grohe, hitastýrð eða einnar handar.

Nánari upplýsingar og bókaðu skoðun:

Hrafnkell P. H. Pálmason Löggiltur fasteignasali, í síma 690 8236, tölvupóstur hrafnkell@fastlind.is.

Vogabyggð er skjólsæl perla á höfuðborgarsvæðinu í nálægð við hafið og náttúruna.

Frábær kostur fyrir þá sem kjósa að búa í umhverfi sem býður bæði upp á borgarbrag og í senn sterka tengingu við náttúruna. Hjóla- og göngustígar liggja meðfram ströndinni sem og upp í Elliðaárdal. Þá er Laugardalurinn innan seilingar.

Innangengt er úr bílakjallara í lyftu- og stigahús.

Húsið er steinsteypt og útveggir einangraðir að utan, klæddir með báru-álklæðningum eða sléttum-álklæðningum sem tryggir lágmarks viðhald húsanna. Gluggar eru ál/tré kerfi og glerjaðir með K-gleri. Innveggir aðrir en steyptir eru úr hleðslusteini.

Lind fasteignasala ehf kynnir eignina Kuggavogur 4, 104 Reykjavík, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 251-6617 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.

Eignin Kuggavogur 4 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 251-6617, birt stærð 77.3 fm.

-----------------------------------------------------------------------

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila

Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati

2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar

4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð .