Brimdalur 8

260 Reykjanesbær

Ásett verð: 119.900.000 kr.

Brimdalur 8
Tegund
Raðhús
Stærð
185 m²
Herbergi
5
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
2
Byggingarár
2021
Fermetraverð
648.108 kr.

Lýsing

* Seljendur skoða skipti á minni eign*

Vel skipulagt 185,0 fm parhús með bílskúr við Brimdal 8, 260 Reykjanesbæ.

Eignin skiptist í 143,5 fm íbúð og 41,5 fm bílskúr, samtals 185,0 fm skv. HMS.

Nánari lýsing: Anddyri með skápum. Gestasalerni innaf anddyri. Eldhús, stofa, borðstofa og sjónvarpsstofa í rúmgóðu og björtu alrými með útg. á pall. Eldhús með góðu skápaplássi, tvöföldum ísskápi (fylgir með), innbyggðum ofni og combi-ofni í vinnuhæð, innbyggðri uppþvottavél, tækjaskápi og barstólaaðstöðu. Þvottahús innaf eldhúsi með innréttingu sem gerir ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð ásamt vaski og skápum. Fjögur rúmgóð svefnherbergi, öll með skápum. Baðherbergi með baðkari, walk-in sturtu m/innbyggðum blöndunartækjum, handklæðaofni, speglaskápi og glugga með opnanlegu fagi.

Innangengt í bílskúr úr anddyri. Bílskúr með epoxý á gólfi, bílskúrshurð með rafmagnsopnun, sér gönguhurð út á pallverönd.

Húsið er hitað upp með gólfhita.

Búið er að koma fyrir hugbúnaði í flest ljós inní íbúðinni svo hægt er að stýra þeim með appi.

Aukin lofthæð er í húsinu.

Verönd skiptist í lokaðan pall með heitum potti sem snýr til suðurs fyrir aftan hús og rúmgóðan grasflöt meðfram húsi.

Snjóbræðsla er undir bílastæði fyrir framan hús.

Frábær staðsetning þar sem stutt er í alla helstu þjónustu.

Nánari upplýsingar veitir Arnór Daði Eiríksson löggiltur fasteignasali í síma 777-0939 / arnor@as.is

Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.

[link]

[link]

[link]