Laufengi 12

112 Reykjavík

Ásett verð: 79.900.000 kr.

Laufengi 12
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
111,1 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Byggingarár
1993
Fermetraverð
719.172 kr.

Lýsing

Lind fasteignasala og Arinbjörn Marinósson löggiltur fasteignasali kynna fallega og vel skipulagða 4 herbergja íbúð á 2. hæð í litlu og snyrtilegu fjölbýlishúsi á þessum vinsæla stað í Grafarvogi. Birt stær eignar er 111.1 fm. þ.a. er íbúðarhluti 106 fm. og geymsla 5.1 fm.

Eignin skiptist í forstofu / gang, eldhús, stofu / borðstofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi / þvottahús og geymslu sem staðsett er í sameign.

Nánari upplýsingar veitir Arinbjörn í síma 822-8574 eða í tölvupósti á arinbjorn@fastlind.is

Nánari lýsing eignar:

Forstofa / gangur: Komið er inn í rúmgóða forstofu með góðum forstofuskápum, parket á gólfi.

Stofa / borðstofa: Rúmgóð með útgengi út á suðursvalir, parket á gólfi.

Eldhús: Með nýlegri dökkri innréttingu, eyju, spanhelluborði, bakaraofn, viftu, borðkrók, parket á gólfi.

Hjónaherbergi: Stórt herbergi með góðum fataskápum.

Svefnherbergi 2: Gott svefnherbergi, parket á gólfi.

Svefnherbergi 3: Gott svefnherbergi, parket á gólfi.

Baðherbergi / þvottahús: Með góðri innréttingu, upphengt salerni, handklæðaofn, sturta, skápur með tengi fyrir þvottavél og þurrkara, flísar á gólfi og veggjum að hluta.

Geymsla: Í sameign á 1 hæð er 5.1 fm. sérgeymsla.

Sameign: Í sameign á 1 hæð er sameiginleg vagna- og hjólageymsla.

Að sögn eiganda er búið að endurnýja eignina mikið undanfarin ár m.a.:

* 2021 Skipt um stóra glerið í stofunni.

* 2018 Ný eldhúsinnrétting og tæki.

* 2018 Parket endurnýjað.

* 2014 Baðherbergi gert upp.

Frábær staðsetning þar sem stutt er leik-, grunn- og framhaldsskóla, íþrótta- og afþreyingarmiðstöðina Egilshöll, Korpúlfsstaðavöll og verslunarmiðstöðina Spöngina. Eign sem vert er að skoða.

Allir kaupendur okkar fá Vildarkort Lindar. Með því að framvísa kortinu færð þú 30% afslátt hjá 9 samstarfsaðilum: Húsgagnahöllin, S. Helgason, Flugger litir, Húsasmiðjan,

Z brautir og gluggatjöld, Vídd, Parki, Betra bak og Dorma.

Eignin Laufengi 12 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 203-9492, birt stærð 111.1 fm.

Nánari upplýsingar veitir Arinbjörn Marinósson Löggiltur fasteignasali, í síma 822-8574, tölvupóstur arinbjorn@fastlind.is.

-----------------------------------------------------------------------

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila

Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati

2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar

4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð .