Stapasíða 11 I

603 Akureyri

Ásett verð: 95.900.000 kr.

Stapasíða 11 I
Tegund
Raðhús
Stærð
162,6 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Byggingarár
1988
Fermetraverð
589.791 kr.

Lýsing

Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala

Stapasíða 11 I

Virkilega vel skipulögð og falleg 4-5 herbergja raðhúsíbúð á tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr sem hefur verið töluvert endurnýjuð. Heitur pottur á stórum timburpalli og góður geymsluskúr með rafmagni aðgengilegur af palli. Eignin er samtals 162,6 fm., þar af er bílskúr 23 fm..

Íbúðin skiptist í á neðri hæð, forstofa, þvottahús með bakdyrainngangi, snyrtingu, stofu og eldhús. Á efri hæð, stórt hol, þrjú svefnherbergi og baðherbergi. Húsið nýmálað

Þak endurnýjað

Gler endurnýjað

Hvitaveitupottur á palli

Bílskúr aðgengilegur úr íbúð

Nýlegt eldhús og eldhústæki

Neðri hæð:

Forstofa er með ljósar flísar á gólfi og góðum fataskáp

Þvottahús er inn af forstofu, þar eru sömu flísar á gólfi, innrétting fyrir þvottavél og þurrkara, vask og gott skápapláss. Bakdyrainngangur er í þvottahús.

Snyrting neðri hæðar er með flísar á gólfi, salerni og litla inrnéttingu undir vask.

Stofa er afar rúmgóð og björt með parket á gólfi og úr stofu er gengið út á timburpall til suðurs.

Eldhús var endurnýjað 2021, þar er parket á gólfi, ljós innrétting með viðar bekkjarplötu, stæði fyrir ísskáp, innbyggð uppþvottavél, bakaraofn í vinnuhæð og tækjaskápur. Við enda innréttingar er lítið barborð.

Geymsla er undir stiga neðri hæðar.

Bílskúr er innangengur og þar var áður geymsla í enda bílskúrs en er hann nú opinn. Nýleg innkeyrsluhurð er í bílskúr og hleðslustöð tengd við enda bílskúrs.

Efri hæð:

Teppi er á stiga milli hæða

Hol er afar rúmgott, með parket á gólfi og möguleiki að vera þar með sjónvarpshol.

Svefnherbergi eru þrjú , tvö þeirra afar rúmgóð og öll með parket á gólfi og stórum fataskápum. Mögulegt er að bæta við einu svefnherbergi. Úr hjónaherbergi og minna barnaherberginu er útgengt út á svalir, til norðurs úr hjónaherbergi sem er þá yfir bílskúr að hluta og til suðurs úr barnaherbergi.

Baðherbergi er með ljósar flísar á gólfi og hluta veggja í kringum baðkar, sturtu og innréttingu í kringum vask. Gluggi er á baðherbergi.

Annað:

-Húsið málað að utan 2025

-Þak endurnýjað 2021

-Nýtt gler í íbúð 2021

-Eldhús og tæki endurnýjuð 2022

-Ný innkeyrsluhurð 2024

-Útidyrahurðir endurnýjaðar

-Parket endurnýjað að stærstum hluta 2019

-Hitaveitupottur settur 2021

-Búið að leggja rafmagn í geymsluskúr á palli og þar eru innstungur

-Ljós á palli tengd við birtuskynjara

-Ljósleiðari tengdur

-Stutt í leik- og grunnskóla

-Rakaummerki eru í lofti á bílskúr sem eru undir svölum efri hæðar. Samkv fyrri eiganda var búið að setja sealant efni á svalirnar og hafa þessi ummerki ekkert breyst hjá núverandi eigendum.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. Undantekningar eru þó við fyrstu kaup einstaklinga 0.4%, nánar um skilyrði helmingsafsláttar í 5 gr. laga nr 138/2013, um stimpilgjöld.

2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 / rafræn þinglýsing kr. 1.500 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).

4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Frekari upplýsingar:

olafur@byggd.is

greta@byggd.is

halla@byggd.is

bjorn@byggd.is

Skipagötu 16 á 2. hæð.

S:464 9955