Fossatunga 8

270 Mosfellsbær

Ásett verð: 117.900.000 kr.

Fossatunga 8
Tegund
Raðhús
Stærð
135 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Byggingarár
2021
Fermetraverð
873.333 kr.

Lýsing

** Hafðu samband og bókaðu tíma fyrir skoðun - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555- Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 **

Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Mjög fallegt og vel skipulagt 135,0 m2 nýlegt endaraðhús á einni hæð með innbyggðum bílskúr á rólegum og vinsælum stað í Leirvogstungu í Mosfellsbæ. Eignin er skráð 135 m2, þar af raðhús 112,0 m2 og bílskúr 23,0 m2. Húsið skiptist í forstofu, sjónvarpshol, eldhús, borðstofu og stofu, þrjú rúmgóð svefnherbergi og baðherbergi. Innangengt er í bílskúr úr forstofu þar sem komið hefur verið upp þvottaaðstöðu. Um er að ræða vandaða of fjölskylduvæna eign með aukinni lofthæð, fallegum innréttingum og gólfhitakerfi með hitastýringu í hverju rými. Harðparket frá Birgisson á gólfum utan forstofu og baðherbergis þar sem eru flísar. Góður pallur til suðvesturs með heitum potti.

** Smelltu hér til að fá söluyfirlitið sent **

Nánari lýsing:

Forstofa er rúmgóð með flísum á gólfi og fataskápum. Úr forstofu er innangengt í bílskúr.

Sjónvarpshol er með harðparketi á gólfi.

Eldhús, borðstofa og stofa mynda opið og bjart alrými með góðri lofthæð og er með harðparketi á gólfum. Í eldhúsi er falleg innrétting með bakaraofni í vinnuhæð, eldhúsvaski, innbyggðum ísskáp og uppþvottavél. Úr borðstofu og stofu er útgengt á skjólgóðan pall til suðvesturs með heitum potti.

Svefnherbergi 1 (hjónaherbergi) er mjög rúmgott með harðparketi á gólfi og fataskápum.

Svefnherbergi 2 er rúmgott með harðparketi á gólfi og fataskáp.

Svefnherbergi 3 er með harðparketi á gólfi og fataskáp

Baðherbergi er stílhreint með flísum á gólfi og veggjum að hluta, innréttingu með handlaug, upphengdu salerni, 'wak-in' sturtu með glerþili og handklæðaofni. Á teikningu er gert ráð fyrir þvottaaðstöðu á baði.

Bílskúr er skráður 23,0 m2 og er með epoxy á gólfi og aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara. Hátt til lofts og því möguleiki á góðu geymslulofti. Hleðslustöð fyrir rafbíla er í bílskúr.

Bílastæði og lóð fyrir framan hús er er með möl en gert er ráð fyrir tveimur bílastæðum. Lóð við hlið hússins er ófrágengin.

Verð kr. 117.900.000