Naustabryggja 20

110 Reykjavík

Naustabryggja 20
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
206,8 m²
Herbergi
7
Svefnherbergi
5
Baðherbergi
2
Byggingarár
2002

Lýsing

Eignamiðlun kynnir:

Tækifæri / skemmd vegna bruna.

Um er að ræða penthouse íbúð á tveimur hæðum við Naustabryggju 20 ,110 Rvk. Skráð stærð skv HMS 206,8 m2. Fasteignamat 2026 er 125.100.000 kr. Tvö stæði í bílageymslu. Eignin skemmdist í bruna fyrir skemmstu og er verið að laga bygginguna , nýtt þak og fleira. Hér er tækifæri að eignast íbúðina nánast fokhelda og hanna eftir sínu höfði. Jafnvel er hægt að skipta upp í tvær 3 herbergja íbúðir á einu fastanúmeri.

Lýsing fyrir bruna:

Fimm svefnherbergi. Tvö baðherbergi, tvö bílastæði.

Mikil lofthæð, fimm metrar þar sem hæst er,fjögur til fimm svefnherbergi, þrjár stofur, ásamt vinnuherbergi/herbergi(fimmta svefnherbergið). Tvær hæðir og tvennar svalir.

Geymslur: Tvær geymslur ein á efri hæð ásamt sér geymslu á fyrstu hæð.

Bílastæði: Íbúðinni fylgja tvö bílastæði í bílakjallara. Búið er að setja upp rafmagnshleðslu. (Bílastæði ekki inni í fermetrafjölda eignarinnar).

Bílageymsla: Aðstaða til að þvo bíla í bílageymslunni.

Sameign: Mjög snyrtileg með nýju teppi á stigagangi. Tvær sameiginlegar hjóla og vagna geymslur á jarðhæð.

Garður: Sameiginlegur garður nokkurra húsfélaga er við Naustabryggju og Básbryggju fylgir sameigninni og er hann þjónustaður af fagaðilum.

ATH: Eignin er skráð 206,8 fm við það bætast 10 fm þar sem búið er stækka rými á efri hæð - að auki nýtast fermetrar undir súð sem ekki teljast með.

Nánari upplýsingar veitir:

Unnar Kjartansson, löggiltur fasteignasali, í síma 867-0968 eða unnar@eignamidlun.is ***

Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook