Hlíðarhjalli 41

200 Kópavogur

Ásett verð: 116.900.000 kr.

Hlíðarhjalli 41
Tegund
Hæð
Stærð
162,799999237061 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Byggingarár
1988
Fermetraverð
718.059 kr.

Lýsing

Rúmgóð og björt 4ra til 5 herbergja efri sérhæð með góðu útsýni, sérinngang og bílastæði í lokuðum bílakjallara við Hlíðarhjalla í suðurhlíðum Kópavogs. Lagt er fyrir rafmagnshleðslu í bílakjallara. Mikil lofthæð er í eigninni. Í dag eru 3 rúmgóð herbergi en auðvelt að gera 4 herbergið.

Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 162,8 fm þar af eru 31,3 fm. sem samanstanda af sérbílastæði í lokuðum bílakjallara og geymslu.

Íbúðin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, sjónvarpsrými, þrjú mjög rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús.

Auðvelt er að útbúa fjórða svefnherbergið úr sjónvarpsherberginu.

Nánari lýsing

Fyrir framan sérinngang eignarinnar er sólrík verönd til suðurs.

Forstofa með góðum fataskápum og flísar á gólfi.

Eldhús er opið og bjart, granít borðplötur, gott skápapláss, ofn í vinnuhæð, gufugleypir, gas/rafmagns helluborð og flísar á gólfi. Rúmgóðum eldhúskrókur með góðu útsýni og parket á gólfi.

Stofa er rúmgóð og björt með mikillri lofthæð og parket á gólfi. Útgengt er út á litlar svalir úr stofunni.

Hjónaherbergi er rúmgott með góðu skápaplássi og parket á gólfi.

Svefnherbergi II mjög rúmgott með parket á gólfi.

Svefnherbergi III mjög rúmgott með parketi á gólfi.

Sjónvarpsrými býður upp á fjölbreytta nýtinga möguleika og mætti auðveldlega nýta sem fjórða svefnherbergið.

Baðherbergi með baðkari og sturtu, snyrtileg innrétting, upphengt salerni, gluggi og handklæðaofn. Flísalagt í hólf og gólf.

Þvottahús með tengi fyrir þvottavél og þurrkara, innrétting, vaskur og flísar á gólfi.

Sérbílastæði er í lokuðum bílakjallara og geymsla eignarinnar er inn af bílastæðinu. Rafhleðslustöð fylgir eigninni.

Í sameign er sameiginleg hjólageymsla fyrir húsið.

Lóð í góðri rækt með leiktækjum.

Helstu framkvæmdir og endurbætur á sameign:

Gluggar hæðarinnar endurnýjaðir vorið 2026, ásamt útidyrahurð og svalahurð.

Blásarar í bílakjallara endurnýjaðir árið 2025.

Þakrennur endurnýjaðar árið 2023.

Hleðslustöð sett upp við bílastæði árið 2023.

Dúkur á þaki bílageymslu endurnýjaður, nýtt gras sett ofan á og hellulögn endurgerð árið 2018.

Þetta er falleg og björt eign með fallegu útsýni á eftirsóttum stað í suðurhlíðum Kópavogs með möguleika á fjórum svefnherbergjum, sérinngangi,

suðurverönd og sérbílastæði í lokuðum bílakjallara með rafhleðslu.

Staðsetning eignarinnar er afar góð. Húsið stendur í lokuðum botnlanga við Hlíðarhjalla, í rólegu og fjölskylduvænu umhverfi.

Stutt er í skóla og leikskóla, verslun og alla helstu þjónustu. Þá eru frábær útivistarsvæði í Kópavogsdalnum

í næsta nágrenni og greiðar samgöngur í allar áttir, enda stutt í helstu stofnæðir.

Allar nánari upplýsingar veitir Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 8995949 eða á netfanginu gudbjorg@trausti.is