Bygggarðar 1

170 Seltjarnarnes

Ásett verð: 119.900.000 kr.

Bygggarðar 1
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
116,4 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
2
Byggingarár
2025
Fermetraverð
1.030.069 kr.

Lýsing

NÝ 4RA HERBERGJA ÍBÚÐ MEÐ SÉRAFNOTAREIT, TVEIMUR BAÐHERBERGJUM OG STÆÐI Í BÍLAGEYMSLU

Baldur fasteignasali, beinn sími 450-0000, kynnir: Í einkasölu glæsilega og vel skipulagða 4ra herbergja íbúð á jarðhæð í nýju og vönduðu Svansvottuðu fjölbýlishúsi við Bygggarða 1 á Seltjarnarnesi. Í íbúðinni eru þrjú svefnherbergi, þar af hjónasvíta með sérbaðherbergi, tvö baðherbergi, sér þvottahús og bjart alrými með stofu og eldhúsi. Úr stofu er gengið út á sérafnotareit og íbúðinni fylgir stæði í bílageymslu. Húsið var byggt 2025 og vandað hefur verið til efnisvals og frágangs.

Smelltu hér til að sækja kynningarbækling með öllum helstu upplýsingum

Stærð eignarinnar er 116,40 fermetrar samkvæmt skráningu HMS. Íbúðinni fylgir 11,7 fermetra sérgeymsla í sameign og stæði í bílageymslu.

Aðal sölupunktar: Nýtt Svansvottað hús, byggt 2025

Þrjú svefnherbergi og tvö baðherbergi

Hjónasvíta með sérbaðherbergi og stórum fataskáp

Sérafnotareitur út frá stofu

Sérsmíðaðar innréttingar frá Selós og Dekton steinn á borðplötum

Vönduð heimilistæki, flest frá Miele

Gólfsíðir gluggar og góð lofthæð

Gólfhiti og jafnvægisstillt loftræsikerfi með varmaendurvinnslu

Sér þvottahús með innréttingu

11,7 fm sérgeymsla í sameign

Stæði í bílageymslu, búið að leggja fyrir hleðslustöð í bílakjallara

Stutt í Gróttu, strandlengjuna og alla þjónustu á Seltjarnarnesi

Íbúðin skiptist í forstofu, alrými með stofu og eldhúsi, hjónaherbergi með sérbaðherbergi, tvö svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús. Þá fylgir íbúðinni jafnframt sérgeymsla í sameign, sérafnotareitur, stæði í bílageymslu og hlutdeild í sameiginlegri hjólageymslu.

Nánari lýsing:

Forstofa: Flísar á gólfi og fataskápur.

Eldhús: Opið inn í stofu og myndar með henni bjart og rúmgott alrými. Sérsmíðuð innrétting frá Selós, spónlögð með eik í bland við dökkar sprautulakkaðar einingar, og rúmgóð eyja. Dekton steinn á borðplötum og milli efri og neðri skápa. Spanhelluborð með innbyggðum gufugleypi í eyju, innbyggður kæli- og frystiskápur, innbyggð uppþvottavél og bakaraofnar í vinnuhæð. Heimilistæki eru flest frá Miele. Harðparket á gólfi.

Stofa: Björt og rúmgóð með gólfsíðum gluggum, harðparketi á gólfi og útgengi á sérafnotareit.

Hjónaherbergi: Rúmgóð hjónasvíta með stórum fataskáp, harðparketi á gólfi og sérsniðnum myrkvunargardínum. Inn af herberginu er sérbaðherbergi.

Svefnherbergi II: Harðparket á gólfi og fataskápur.

Svefnherbergi III: Harðparket á gólfi.

Baðherbergi við hjónaherbergi: Flísar á gólfi og veggjum. Sérsmíðuð innrétting með eikarspónlögðum vaskaskáp og steini á borði, walk-in sturta, vegghengt salerni og handklæðaofn.

Baðherbergi: Flísalagt með sérsmíðaðri innréttingu og eikarspónlögðum vaskaskáp, walk-in sturta og handklæðaofn.

Þvottahús: Inn af baðherbergi, flísar á gólfi og sérsmíðuð innrétting. Aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð, vaskur og aukaskápur.

Geymsla: 11,7 fermetra sérgeymsla í sameign.

Bílastæði: Stæði í bílageymslu. Búið er að leggja fyrir hleðslustöð í bílakjallara en eftir er að leggja að stæðinu.

Sameign: Sameiginleg hjólageymsla og leiksvæði á lóð.

Húsið: Staðsteypt og einangrað hús, byggt 2025 og Svansvottað. Klætt að utan með svartri Dekton steinklæðningu, koparlitaðri álklæðningu og bambusklæðningu.

Gluggar: Gólfsíðir og hærri til lofts en almennt gerist, sem hámarkar birtu inn í íbúðina.

Hiti og loftræsing: Gólfhiti í íbúðinni og jafnvægisstillt loftræsikerfi með varmaendurvinnslu sem tryggir góð loftgæði.

Hljóðvist: Hljóðísogsplötur í hluta lofts bæta hljóðvist.

Staðsetning: Bygggarðar eru nýtt íbúðahverfi á Seltjarnarnesi, stutt frá sjónum. Fallegar göngu- og hjólaleiðir liggja meðfram strandlengjunni og út í Gróttu, og stutt er í skóla, leikskóla, Sundlaug Seltjarnarness, Eiðistorg og alla helstu þjónustu. Örstutt er í miðbæ Reykjavíkur.

Glæsileg og vel skipulögð fjölskyldueign í nýju og vönduðu húsi á eftirsóttum stað á Seltjarnarnesi.

Nánari upplýsingar veitir:

Baldur Jezorski, löggiltur fasteignasali

baldur@fastgardur.is / Beinn sími 450-0000

Skoða meðmæli - Verðmat fasteigna - Greiðslumat.is - Að selja hjá Baldri