Ægissíða 8

610 Grenivík

Ásett verð: 37.900.000 kr.

Ægissíða 8
Tegund
Einbýlishús
Stærð
85,9 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
1948
Fermetraverð
441.211 kr.

Lýsing

Kasa fasteignir 461-2010.

Ægissíða 8, Grenivík - Snyrtilegt 85,9 fm 3 herbergja einbýlishús með verönd, heitum potti og stórum garði á einstökum útsýnisstað við sjávarsíðuna á Grenivík.

Eignin skiptist í forstofu, hol, stofu, eldhús, búr, baðherbergi, tvö svefnherbergi, þvottahús og geymslu.

Gengið er inn í forstofu á suður-hlið hússins. Þar eru flísar á gólfi og opið fatahengi.

Stofa og hol eru með parket á gólfum.

Baðherbergi var endurnýjað fyrir 2-3 árum. Þar eru flísar á gólfum, hvít innrétting, upphengt salerni, handklæðaofn og sturtuklefi. Af baðherberginu er útgengt útá verönd með heitum potti.

Svefnherbergin eru tvö, bæði með parket á gólfum. Í hjónaherbergi er innbyggður fataskápur.

Eldhús er með parket á gólfi. Þar er rúmgóð innrétting með plássi fyrir uppþvottavél. Hvítar flísar eru á milli skápa.

Inn af eldhúsi er búr . Þar eru flísar á gólfi og opnanlegur gluggi.

Þvottahús er mjög rúmgott. Þar eru flísar á gólfi og þaðan er útgengt út á nýlega steypt bílaplan með snjóbræðslukerfi.

Inn af þvottahúsi er geymsla með flísum á gólfi.

-Geymsluskúr á lóð

-Frábær staðsetning við sjávarsíðuna

Nánari upplýsingar í síma 461-2010 eða kasa@kasafasteignir.is

------------

Skoðunarskylda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kasa fasteignir benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Teikningar sem birtar eru í auglýsingu og söluyfirliti eru eingöngu til viðmiðunar og sýna núverandi skipulag eignarinnar. Ekki er ábyrgst að þær séu samþykktar teikningar eða í samræmi við opinber byggingargögn.