Borgarvegur 23

260 Reykjanesbær

Ásett verð: 99.800.000 kr.

Borgarvegur 23
Tegund
Einbýlishús
Stærð
189,799998474121 m²
Herbergi
7
Svefnherbergi
5
Baðherbergi
1
Byggingarár
1981
Fermetraverð
525.817 kr.

Lýsing

Díana og Hulda löggiltir fasteignasalar frá Lögheimili Eignamiðlun ehf. kynna eignina Borgarvegur 23, 260 Reykjanesbær, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 209-2956 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.

Eignin Borgarvegur 23 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 209-2956, birt stærð 189.8 fm.

Einbýlishús á einni hæð í Ytri Njarðvík með 5 svefnherbergjum, 36,6 fm bílskúr, suðursólpalli, heitum potti og grónum garði.

Rúmgott og vel skipulagt einbýlishús á rólegum og fjölskylduvænum stað í Ytri Njarðvík, Reykjanesbæ.

Eignin er vel staðsett, stutt er í alla almenna þjónustu, leik-, grunn- og framhaldsskóla og útivist.

Inngangur: Bjartur og opinn fer inn í opið rými sem er nýtt sem sjónvarpshol.

Sjónvarpshol: Opið rými frá inngangi, útgengi í garð frá svalahurð, eldhús og svefnherbergjagang. Möguleiki að opna inn í stofu.

Eldhús: Bjart með góðri eldhúsinnréttingu með miklu skápaplássi, Bosh ofn og helluborð og eldhúsborðkróki. Inn af eldhúsi er þvottahús. Frá eldhúsi er opið í stofu.

Þvottahús: Stórt og bjart með glugga og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Inntak fyrir heita og kalda vatnið, rafmagnstafla.

Stofa: Stór og björt, nýtt núna sem dagheimili hjá tveimur dagmömmum. Úr stofu er útgengi sem fer í garðinn við hlið hússins sem er lokað af. Gengið inn í eldhús frá stofu. Möguleiki að opna inn í sjónvarpshol.

Hjónaherbergi: Stórt, bjart og rúmgott með miklu skápaplássi.

4 Herbergi: Fjögur herbergi sem eru samnýtt sem tvö stór og björt unglingaherbergi í dag.

Baðherbergi: Baðherbergi með fallegri innréttingu með handlaug, "walk in" sturtu, hornbaðkar, handklæðaofn og upphengdu salerni

Bílskúr: Rúmgóður og bjartur með gluggum á hliðum. Heiti potturinn er með pottastýringu sem er við inngang. Nýleg rafmagnstafla. Hleðslustöð 22kw. Hiti í planinu.

Garður að aftan: Útgengi út á stóran og skjólsælan suðursólpall með heitum potti. Fallegur og gróinn garður.

Viðhald samkvæmt eiganda:

2018 Viðhaldsfríir gluggar og hurðar frá gluggavinum

2019 Skipt um klæðingu á ytra byrði húss.

2025 Þak endurnýjað.

2026 Tengi fyrir rafbíl.

Það á eftir að fara í þakskyggni og klára að klæða bílskúr.

Nánari upplýsingar veitir

Díana löggiltur fasteignasali, í síma 895 9989, tölvupóstur diana@logheimili.is.

Hulda löggiltur fasteignasali, í síma 771 2528, tölvupóstur hulda@logheimili.is.