Heiðarimi 12

805 Selfoss

Ásett verð: 74.900.000 kr.

Heiðarimi 12
Tegund
Sumarhús
Stærð
103,3 m²
Herbergi
5
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
2
Byggingarár
2018
Fermetraverð
725.073 kr.

Lýsing

** Hafðu samband og bókaðu tíma fyrir skoðun - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 **

Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Glæsilegt 103,3 m2 sumarhús á fallegum útsýnisstað við Heiðarima 12, 805 Grímsnes- og Grafningshreppi. Eignin stendur á vel staðsettri 10.000 m2 eignarlóð. Eignin er skráð 103,3 m2 en þar af kjallari 48,7 m2, sumarhús 50 m2 og svefnloft 4,6 m2 (gólfflötur um 23,4 m2). Efri hæð skiptist í forstofu, 2 svefnherbergi, baðherbergi, eldhús, stofu og svefnloft. Neðri hæð skiptist upp í forstofu hol, baðherbergi og 2 gluggalaus rými.

Húsið er byggt árið 2018 og er hitaveita í húsinu. Stórar timburverandir með heitum potti og glæsilegu útsýni. Símahlið inn í hverfið.

Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.

Nánari lýsing:

Efri hæð:

Forstofa er með flísum á gólfi og handklæðaofn. Úr forstofu er stigi upp á svefnloft.

Svefnloft er með parketi á gólfi og glugga. Er skráð 4,6 m2 en gólfflötur er um 23,4 m2.

Svefnherbergi nr. 1 er með parketi á gólfi.

Svefnherbergi nr. 2 er með parketi á gólfi.

Stofa og borðstofa eru í opnu rými með mikilli lofhæð og parketi á gólfi. Úr stofu er gengið út á timburverönd í suðausturátt með útsýni í allar áttir.

Eldhús er fallegri L-laga innréttingu. Í innréttingu er innbyggð uppþvottavél, innbyggður ísskápur ofn, helluborð og vaskur,

Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf með fallegri innréttingu, vegghengdu salerni og sturtu. Gert er ráð fyrir þvottavél í innréttingu.

Neðri hæð:

Forstofuhol er með flísum á gólfi. Inn af forstofuholi eru tvö gluggalaus rými með parketi á gólfi, sem hafa verið nýtt í svefnaðstöðu og stofu.

Baðherbergi er með innréttingu, vegghengdu salerni og 'walk in' sturtu. Flísar á gólfi og veggjum að hluta.

Verð kr. 74.900.000,-