Þórunnarstræti 112 efri hæð

600 Akureyri

Ásett verð: 77.000.000 kr.

Þórunnarstræti 112 efri hæð
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
186,1 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
1
Byggingarár
1970
Fermetraverð
413.756 kr.

Lýsing

Þórunnarstræti 112 efri hæð - Stór og björt 4-5 herbergja efri hæð á efri brekkunni ásamt bílskúr - Stærð 186,1 m²

Eignin skiptist með eftirfarandi hætti:

Forstofa, eldhús, stofa, fjögur svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og bílskúr.

Forstofa er á fyrstu hæð en þar er opið fatahengi og gengið upp stiga á hæðina.

Eldhús er með rúmgóðri innréttingu, góður borðkrókur og parket á gólfi.

Stofa er mjög rúmgóð með stórum gluggum og fallegri kamínu. Parket á gólfi.

Svefnherbergin eru fjögur, tvö þeirra með fataskápum og öll með parketi.

Baðherbergi er með ljósri innréttingu, baðkari með sturtutækjum og wc. Flísar á gólfi og veggjum. Opnanlegur gluggi.

Þvottahús á svefnherbergisgangi með tengjum fyrir þvottavél og þurrkara og opnanlegum glugga.

Bílskúr , 33,1 m², er með steyptu gólfi, þar er rafmagn og kalt vatn.

Annað:

- Nýlega hefur verið skipt um lagnir frá húsi og útí götu

- Gólfhiti er á stærstum hluta íbúðarinnar.

- Múrviðgerðir verða framkvæmdar í sumar og greiðast af seljanda.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.

Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.