Hallgerðartún 55

860 Hvolsvöllur

Ásett verð: 82.100.000 kr.

Hallgerðartún 55
Tegund
Raðhús
Stærð
132,999999237061 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Fermetraverð
617.293 kr.

Lýsing

Halldóra Kristín Ágústsdóttir löggiltur fasteignasali sími 8611105- dora@eyjaeignir.is og Eyjaeignir fasteignasala kynna í almennri sölu: Hallgerðartún 55 sem er glæsilegt og vel skipulagt miðju raðhús á einni hæð í byggingu á fallegum stað á Hvolsvelli. Eignin er 132,8 m2, þar af er bílskúr 29,8 m2. Einstaklega björt og falleg eign, mikil lofthæð, innfelld lýsing, hiti í gólfum, flísalagður bílskúr. Fallegt umhverfi og glæsilegt útsýni.

Fyrir nánari upplýsingar eða til að bóka skoðun hafið samband á netfangið dora@eyjaeignir.is eða í síma 8611105

Húsin eru byggð úr timbri og eru á steyptum sökklum. Húsin eru klædd með Cembrit sementsklæðningu. Gluggar eru úr timbri, með áli að utan og þreföldu gleri.

Innréttingar og tæki eru innflutt og sérsmíðuð, gólfhiti, parket og flísar á gólfi, yfirfelldar hurðir af vandaðri gerð og sólpallur í suður. Varmaskiptir á neysluvatni og gólfhita.

Lóð er sléttuð og tyrfð og bílaplan hellulagt, ruslatunnuskýli verða frágengin.

Glæsileg, rúmgóð og vel skipulögð eign með mikilli lofthæð ( 270 cm).

Nánari lýsing endaraðhúss:

Forstofa með skáp og flísum á gólfi.

Eldhús er með innfluttri, sérsmíðaðri innréttingu, ljúflokunarbúnaður á skúffum, ledlýsing undir efri skápum, innbyggður ísskápur og uppþvottavél sem fylgir með, bakaraofn og span helluborð með viftu. Steinborðplötur á eldhúsinnréttingu.

Stofa, borðstofa og eldhús er í opnu og björtu alrými með útgengt á timburverönd í suður.

Baðherbergi er með flísum á gólfi á tveimur veggjum, innbyggt upphengt salerni, walk in sturta og handklæðaofn.

Hjónaherbergi I (12,4 m2) er með fataskápum, gott skápapláss.

Herbergi II (9 m2) með fataskáp.

Herbergi III (9 m2) með fataskáp.

Þvottahús með góðri innréttingu og flísum á gólfi, innangengt úr þvottahúsi í bílskúr

Bílskúr með rafdrifinni innkeyrsluhurð ásamt gönguhurð, epoxy á gólfi.

Verönd: Útgengt úr stofu á góða verönd sem snýr í suður sem er 3 metrar meðfram öllu húsinu að bakatil.

Byggingaraðili er SA smíðar ehf sem hafa áunnið sér góðan orðstír fyrir vönduð vinnubrögð og skil á réttum tíma.

Eigninni verður skilað fullfrágenginni að utan sem og innan, með gólfefnum. Eignin skilast á byggingarstigi 7, matstigi 7. Fullfrágengin skv. skilalýsingu. Kaupandi mun greiða skipulagsgjald þegar það verður innheimt sem er 0,3% af endanlegu brunabótamati. Gatnagerðargjald og tengigjöld veitna eru greidd af seljanda

Skoðunar- og aðgæsluskylda:

Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.

Söluyfirlit:

Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:

1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.

2. Þinglýsingargjald: 3800 kr. fyrir hvert skjal.

3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.

3. Þjónustusýslugjald: 79.000 kr. m/vsk.

3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.