Almannadalur 9
161 Reykjavík

- Herbergi
- 0
- Svefnherbergi
- 0
- Baðherbergi
- 0
Lýsing
Trausti fasteignasala, Katarzyna Kleinschmidt aðstoðarmaður fasteignasala og Hallgrímur Hólmsteinsson löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu eignina Almannadalur 9, 161 Reykjavík, glæsileg nýbyggð hesthús með stórum og rúmgóðum kaffistofum fyrir eiganda fyrir ofan. Alls eru þetta fjögur hús og eru tvær stærðir í boði, tvö húsanna eru um 170 fm og tvö þeirra eru um 100 fm. Byggingaraðili húsanna veitir allt að 80% seljendalán til 25 ára með sambærilegum kjörum og lánastofnanir.
Nánari lýsing eigna:
Stærri húsin er alls um 170 fm og skiptast í kaffistofu , eldhús , baðherbergi , ásamt hesthúsi með sjö eins hesta stíum.
Minni húsin eru alls um 100 fm og skiptast í kaffistofu , eldhús , baðherbergi, ásamt hesthúsi með þremur tveggja hesta stíum .
Allar efri hæðirnar eru með stórum þaksvölum með möguleika á heitum potti.
Verðið er 59,9 mkr. fyrir minni húsin en 98,5 mkr. fyrir stærri húsin.
Hér eru frábærar eignir á ferðinni fyrir hestafólk þar sem hægt verður að stunda áhugamálið og njóta glæsilegrar kaffistofu og vistarveru með gestum. Almannadalur er við Hólmsheiði og eru reiðleiðir um alla heiðina. Stutt er í náttúruna og útivist en verslanir og þjónustu er hægt að sækja í Norðlingaholt í um 5 mínútna akstursfjarlægð.
Kaffistofum og hesthúsum verður skilað fullbúnum, en án gólfefna. Traustur og reyndur byggingaraðili er í verkinu.
Nánari upplýsingar veita Katarzyna Kleinschmidt aðstoðarmaður fasteignasala í síma 774-2730, tölvupóstur katarzyna@trausti.is eða Hallgrímur Hólmsteinsson löggiltur fasteignasali í síma 896-6020, tölvupóstur hallgrimur@trausti.is.