Álfaskeið 80
220 Hafnarfjörður
Ásett verð: 83.900.000 kr.

- Tegund
- Íbúð í fjölbýli
- Stærð
- 142,2 m²
- Herbergi
- 5
- Svefnherbergi
- 4
- Baðherbergi
- 1
- Byggingarár
- 1965
- Fermetraverð
- 590.014 kr.
Lýsing
Glæsileg 5 herbergja endaíbúð í Hafnarfirði, björt og opin íbúð með glugga á 3 hliðar, 2 svalir, 4 svefnherbergi, bílskúr, nýuppgerð íbúð. Geymsla í sameign.
Glæsileg og nýlega uppgerð 5 herbergja endaíbúð á 3. (efstu) hæð í fallegu fjölbýli í Hafnarfirði, með tvennar svalir og glugga í 3 áttir. Íbúðin er 118,4 fm, auk bílskúrs 23,8 fm, samtals 142,2 fm. Gott útsýni og góð staðsetning með auðvelt aðgengi að stofnbrautum. Húsið hefur verið endurnýjað að utan á s.l. árum.
Forstofa með skáp, hol , björt og opin stofa . Bjart og gott eldhús með rúmgóðum borðkrók, með opið aðgengi að stofu. Hvít innrétting og nýleg tæki. Svefngangur , rúmgott hjónaherbergi með stórum skáp. Rúmgott barnaherbergi með skáp, og annað minna barnaherbergi . Svefnherbergi með aðgengi úr stofu - auðvelt að taka niður veggi og sameina þetta herbergi við stofu. Fallegt baðherbergi , ljós innrétting, hvítar flísar í hólf og gólf, upphengt salerni, baðkar með sturtuaðstöðu, gluggi á baði. Innrétting fyrir þvottavél í íbúð. Góð sérgeymsla í sameign. Sameign með hjóla/vagnageymslu og þvottaaðstöðu. Bílskúr með hita, rafmagni, og bílskúrshurðaopnara. Suðurgarður með leiktækjum.
Nýtt parket á allri íbúðinni. Ný blöndunartæki og hluti innréttinga er nýr. Íbúðin er nýlega heilmáluð.
Fjármögnun: IMIROX lán til lögaðila í boði á þessa eign. Frekari upplýsingar um fasteignalán IMIROX á [link] .
Vinsamlegast sendið fyrirspurnir varðandi eignina á info@imirox.com eða hringið í síma 777-2500.
Tilboðsgerð
Finndu frekari upplýsingar um eignina á [link]
- Söluyfirlit
- Senda fyrirspurn
- Tilboðsgerð