Haukanes 6

210 Garðabær

Ásett verð: 340.000.000 kr.

Haukanes 6
Tegund
Einbýlishús
Stærð
384,500000762939 m²
Herbergi
8
Svefnherbergi
6
Baðherbergi
2
Byggingarár
1979
Fermetraverð
884.265 kr.

Lýsing

Þórhallur Biering fasteignasali sími 896-8232 og Betri Stofan kynna: Glæsilegt 384,5 fm einbýli á tveimur hæðum á sjávarlóð/eignarlóð á Arnarnesinu. Hús í sérflokki og mikið endurnýjað.

Efri hæð : Tveir inngangar, stórar stofur, eldhús, baðherbergi. Tvöfaldur bílskúr.

Neðri hæð : Sér inngangur og stigi á milli hæða. Baðherbergi,hjónasvíta og fimm önnur svefnherbergi,geymsla og þvottahús. Garður allur tekinn í gegn sumarið 2023.

Efri hæðin: Komið inn aðal inngang hússins í gott anddyri og þaðan inn í alrými. Á vinstri hönd er setustofa og á hægri hönd er borðstofan, gott og vandað parket á gólfi. Stórir glugga í stofum og eldhús með útsýni út á Arnarnesvoginn. Þar innaf er rúmgott eldhús með nýlegri Miele innréttingu og tækjum, flísar á gólfi. Á hæðinni er einnig gott baðherbergi með baðkari og sturtuaðstöðu. Bílskúrinn sem er 43,4 fm er mjög snyrtilegur og aðgengilegur. Góður stigi á milli hæða.

Neðri hæðin: 6 svefnherbergi og þar af er hjónaherbergi með fataherbergi innaf,vandað parket á gólfi svefnherbergja. Endurnýjað baðherbergi með góðri innréttingu og hornbaðkari. Rúmgóð geymsla. Af neðri hæð er útgegnt á skjólgóða verönd.

Lóðin: Er afar falleg,vel gróin og snyrtileg,skjólgóð verönd með skjólveggjum. Meginhluti garðsins er framan við húsið og snýr í suður.

Mjög góð hellulögð bílastæði fyrir framan bílskúr og til hliðar við hann.

Um er að ræða afar áhugaverða og góða eign á frábærum stað við sjávarsíðuna á Arnarnesinu.

Allar nánari upplýsingar gefur:

Þórhallur Biering löggiltur fasteignasali í síma 896-8232 eða thorhallur@betristofan.is