Bugðufljót 17D
270 Mosfellsbær
Ásett verð: 69.900.000 kr.

- Tegund
- Atvinnuhúsnæði
- Stærð
- 156,7 m²
- Herbergi
- 0
- Svefnherbergi
- 0
- Baðherbergi
- 1
- Byggingarár
- 2022
- Fermetraverð
- 446.075 kr.
Lýsing
** Hafðu samband og bókaðu tíma fyrir skoðun - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 **
Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Nýlegt og vandað atvinnuhúsnæði á stórri lóð við Bugðufljót 17D á Tungumelum í Mosfellsbæ. Eignin er 156,7 m2, þar af atvinnurými 108,0 m2 og milliloft um 48,7 m2. Tvær inngönguhurðir og tvær stórar innkeyrsluhurðir (4,2X4 m og 3X3 m). Tvö bílastæði fyrir framan innkeyrslu hurð og tvö bílastæði á baklóð. Húsið er reist úr forsteyptum einingum frá BM Vallá.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.
Nánari lýsing eignar: Neðri hæð: Í dag er salnum skipt upp í tvö rými með epoxý á gólfi. Rúmgott salerni með vegghengdu salerni og epoxý á gólfi. Gólfhiti. Tvær innkeyrsluhurðar og tvær inngönguhurðar.
Sigi upp á milliloftið með handriði og hvíldarpalli. Efri hæð: Skiptist í tvö rými með parketi á gólfi. kaffistofa með innréttingu og skrifstofa. Sér hiti og rafmagn er í rýminu. Áhvílandi er á eigninni vsk kvöð og miðast söluverð við að kaupandi yfirtaki kvöðina.
Nánar um húsið: Útveggjaeiningar eru frá Smellinn samlokueiningar með VÖLUN að utanverðu, veðurkáða 7 sm, einangrun 10 sm og burðarveggur 15 sm. Þakið eru yleiningar (Sandwich) og límtré. Annarhver milliveggur milli bila eru steinsteyptar einingar og annarhver er yleiningar. Yfirborð steyptra veggja að innan er grófpússað eða ómeðhöndlaðir úr steypumótum frá Smellin. Yfirborð yleiningar er lakkað málmyfirborð. Bílaplan er fullfrágengið malbikuð/hellulögð með niðurföllum, olíuskilju og sorpaðstöðu.
Verð kr. 69.900.000,-