Sjafnarvellir 15

230 Reykjanesbær

Ásett verð: 97.900.000 kr.

Sjafnarvellir 15
Tegund
Parhús
Stærð
182,69999961853 m²
Herbergi
6
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
2
Byggingarár
2001
Fermetraverð
535.851 kr.

Lýsing

Stuðlaberg fasteignasala kynnir í einkasölu rúmgott 182fm parhús innarlega í botnlangagötu við Sjafnarvelli 15 í Keflavík. Stutt er bæði í leik- og grunnskóla ásamt allri helstu þjónustu. Húsið skiptist í forstofu, eldhús, borðstofu, stofu, fjögur svefnherbergi, tvö baðherbergi, þvottahús og bílskúr. Húsið hefur verönd bæði fyrir framan hús og aftan ásamt heitum og köldum potti.

* Þakjárn endurnýjað - 2024

* Nýr þakpappi og flasningar á bílskúrsþaki - 2026

* Nýtt harðparket á neðri hæð - 2022

* Ný borðplata og helluborð í eldhúsi - 2022

* Nýr pallur í bakgarði, heitur og kaldur pottur - 2022

* Flestir rafmagnstenglar og ljósrofar endurnýjaðir - 2025

* Pallur málaður að framan - 2025

* Þarf að skipta um 2-3 glugga í eigninni en allir gluggar og útihurðir á jarðhæð voru málaðir 2025.

Lýsing neðri hæðar:

Forstofa : Vatnsþolið harðparket á gólfi, rúmgóður forstofuskápur.

Eldhús : Upprunaleg innrétting sem var nýlega máluð, borðplötu og helluborði var skipt út árið 2022. Ný uppþvottavél og ísskápur fylgja eigninni.

Stofa/borðstofa : Bjart opið rými með harðparketi á gólfi, innfelldri led-lýsingu og gólfsíðum gluggum. Frá stofu er gengið út á verönd.

Sjónvarpshol : Harðparket á gólfi og stigi upp á aðra hæð.

Hjónaherbergi : Rúmgott hjónaherbergi með harðparketi á gólfi, góður fataskápur.

Baðherbergi : Endurgert í mars 2026. Flísalagt í hólf og gólf, rúmgóð sturta, baðkar og upphengt salerni.

Barnaherbergi : Parket á gólfi og fataskápur.

Innangengt er í bílskúr .

Bílskúr er með flísum á gólfi og bílskúrshurð með rafmagnsopnara ásamt eins fasa hleðslustöð. Gengið er í þvottahús úr bílskúr.

Þvottahús : Flísar á gólfi, vaskur og mikið skápapláss. Gert er ráð fyrir bæði þvottavél og þurrkara í innréttingu. Gengið er út á baklóð úr þvottahúsi.

Nánari lýsing efri hæðar:

Salerni : Flísar á gólfi, innrétting með handlaug, salerni og sturta.

Herbergi : Með parketi á gólfi og skáp undir súð.

Herbergi : Með parketi á gólfi og skáp ásamt innangengri geymslu undir súð.

Skápar með miklu geymsluplássi undir súð.

Stór og góður bakgarður, 14,9m2 kofi er á baklóð frá Kofar og hús, rafmagn er í geymsluskúr. Steyptar súlur undir, 6 tommu þykkar yleiningar og pallur.

Pallur var stækkaður árið 2022 og settur heitur og kaldur pottur. Einnig eru lagnir til staðar fyrir útisturtu eða vatn fyrir sturtu/sauna í útiskúr.

Innkeyrsla við bílskúr og gangstétt er upphituð með frárennsli hússins.

Allar nánari upplýsingar veitir:

Brynjar Guðlaugsson

Lögg. fasteignasali

s. 896-5464 eða 420-4000

brynjar@studlaberg.is