Helluvað 13

110 Reykjavík

Ásett verð: 78.800.000 kr.

Helluvað 13
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
96,1 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
2007
Fermetraverð
819.979 kr.

Lýsing

Betri Stofan Fasteignasala og Sverrir Sigurjónsson, lögmaður og löggiltur fasteignasali kynna:

Í einkasölu:

Eignina Helluvað 13, 110 Reykjavík, nánar tiltekið eign merkt 02-07, fastanúmer 228-2902 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.

Um er að ræða íbúð á 2. hæð í lyftuhúsi með stæði í bílakjallara. Íbúðin er vel skipulögð 3ja herb íbúð á 2.hæð í fjölbýlishúsi í Norðlingaholtinu.

Íbúðin er björt með útsýni frá svölum og stofu að Elliðavatni og fjallahringinn og til Esju úr svefnherbergjum.

*** Stæði í bílakjallara ***

*** Stutt í náttúru og skóla ***

Nánari lýsing:

Komið er inn í forstofu með stórum fataskáp og flísum á gólfi.

Hol með parketi á gólfi.

Opið eldhús með fallegri innréttingu og parketi á gólfi.

Stofa með parketi á gólfi og útgengi út á góðar svalir. Svalirnar eru rúmgóðar og snúa í suðaustur.

Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, innréttingu og baðkari.

Rúmgott hjónaherbergi með parketi og góðu skápaplássi.

Barnaherbergið er með parketi á gólfi og fataskáp.

Þvottahús með flísum á gólfi.

Viðarparket er fljótandi yfir alla íbúðina, nema á votrýmum eru flísar.

Í sameign er vagna og hjólageymsla.

Sérmerkt geymsla í sameign sem er 7 fm

Bílastæði í bílakjallara fylgir íbúðinni og fer lyfta úr bílakjallara beint fyrir framan íbúð, einungis tvær íbúðir eru á hæðinni. Sameiginleg þvottaaðstaða er í bílakjallara. komið er tengi fyri rafhleðslustöð frá ON við bílastæðið.

Staðsetningin á Helluvaði er mjög góð m.t.t. fjarlægðar frá skóla. Engin gata í skóla og göngufæri ca. 3 mínútur. Fylkir (fimleikar, karate, Parkour, rafdeild) ásamt dansskóla ofl. í nágreninu.

Stutt í fallegar gönguleiðir s.s. við Rauðavatn, Heiðmörk, Elliðaárdalinn og í Víðidal.

Eignin Helluvað 13 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 228-2902, birt stærð 96.1 fm.

Nánari upplýsingar veitir Sverrir Sigurjónsson Löggiltur fasteignasali, í síma 6624422, tölvupóstur ss@betristofan.is.