Kóngsbakki 6

109 Reykjavík

Ásett verð: 84.900.000 kr.

Kóngsbakki 6
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
158,5 m²
Herbergi
6
Svefnherbergi
5
Baðherbergi
1
Byggingarár
1968
Fermetraverð
535.647 kr.

Lýsing

Valhöll og Ingunn Björg löggiltur fasteignasali kynna fallega, bjarta og rúmgóða sex herbergja íbúð á þriðju og efstu hæð í snyrtilegu fjölbýlsihúsi. Hér er um að ræða einstaklega hentuga eign fyrir stóra barnafjölskyldu. Eignin skiptist í 5 svefnherbergi, 2 baðherbergi, gott þvottahús innan íbúðar, rúmgóða stofa og borðstofu með útgengi út á suðursvalir, rúmgott eldhús með miklu skápaplássi. Tvær stórar geymslur eru í sameign ásamt hjóla og vagnageymslu. Skv. HMS er eignin skráð 158,5 fm2, þar af er 15,8fm2 geymsla.

Mjög falleg og vel skipulögð íbúð sem hentar vel þörfum stærri fjölskyldna í húsi sem hlotið hefur gott viðhald í gegnum árin. Snyrtileg sameign og lóð. Góð staðsetning þar sem stutt er út á helstu stofnbrautir og í alla helstu þjónustu s.s skóla, leikskóla, verlsanir og aðra þjónustu.

Sjón er sögu ríkari bókið skoðun hjá :

Ingunn Björg Sigurjónsdóttir löggiltur fasteignasali / s.856 3566 / ingunn@valholl.is

Helstu framkvæmdir við húsið á undanförnum árum að sögn seljenda: 2020-2021 Þak endurnýjað, skipt um pappa, járn og timbur sem þörf var á.

2020-2024 Hluti af gluggum endurnýjaðir.

2022-2024 Húsið múrviðgert og málað.

2022-2024 Gaflar klæddir ásamt austurhlið hússins.

2022-2024 Skipt um timburhandrið á svölum og svalagólf viðgerð og máluð.

2024 Skipt um hluta af skólplögnum í kjallara stigagangs nr. 6.

Gler hefur verið endurnýjað í flestum gluggum innan íbúðar.

Helstu framkvæmdir innan íbúðar að sögn seljenda:

2024 Skipt um gólfefni á alrými og herbergjum.

2025 Sett upp þvottahúsinnrétting ásamt rafmagni í sértöflu fyrir þvottavél og þurrkara.

2026 Skipt um blöndunartæki í vaski á stærra baðherbergi.

2026 Skipt um innréttingu á gestasalerni.

2026 Skipt um krana undir báðum vöskum á baðherbergjum.

Lýsing eignar:

Mjög snyrtileg sameign.

Forstofa með góðum fataskáp með rennihurðum og flísum á gólfi.

Gestasalerni er inn af forstofu með nýlegri innréttingu, vaski og salerni, flísar á gólfi og málaðir veggir.

Borðstofa og stofa eru samliggjandi í opnu rými, útgengt er á svalir úr borðstofu. Harðparket á gólfi.

Eldhúsið er stórt og bjart með U innréttingu með miklu skápaplássi og hólfi fyrir amerískan ísskáp, helluborð með nýlegum háf yfir, ofn í vinnuhæð, góður borðkrókur með fallegum gólfsíðum glugga, flísar á gólfi.

Barnaherbergi 1: Rúmgott herbergi með harðparketi á gólfi er á vinstri hönd þegar komið er inn úr forstofu.

Svefnherbergisgangur er með harðparketi á gólfi, þaðan er gengið inn í 4 herbergi, baðherbergi og þvottahús.

Hjónaherbergi er rúmgott með stórum fataskáp með rennihurðum og fallegum gólfsíðum glugga, harðparket á gólfi.

Barnaherbergi 2: Harðparket á gólfi, laus fataskápur.

Barnaherbergi 3: Harðparket á gólfi, laus fataskápur.

Barnaherbergi 4: Harðparket á gólfi.

Baðherbergi: Flísar á gólfi, innrétting með niðurfelldum vaski, rúmgóðir háskápar á heilum vegg, flísalagðir veggir að hluta. Baðkar með sturtu og glerþili, upphengt salerni.

Þvottahús: Nýleg snyrtileg innrétting, með góðu skápaplássi, flísar á gólfi.

Svalir: Fínar svalir sem snúa ti suðurrs.

Geymsla: Í sameign er mjög rúmgóð, tæplega 16 fm geymsla auk ca. 6 fm geymslu sem ekki er skráð inn í fermetratölu eignarinnar.

Lóð og garður: Snyrtileg lóð og sameiginlegur garður með leiktækjum fyrir börn.

Við útidyr er sérinngangur í sameiginlega hjóla og vagnageymsla.

Nánari upplýsingar veitir:

Ingunn Björg Sigurjónsdóttir löggiltur fasteignasali / s.856 3566 / ingunn@valholl.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. VAlhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Um ástand einstakra eignarhluta:

Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:

Nýtt - Eignin er nýbygging.

Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.

Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.

Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.

Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.

Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.

Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.

Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.