Hrísrimi 3

112 Reykjavík

Ásett verð: 71.900.000 kr.

Hrísrimi 3
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
115,399999237061 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Byggingarár
1991
Fermetraverð
623.050 kr.

Lýsing

Jósep Grímsson löggiltur fasteignasali og Fasteignasalan Grafarvogi kynna Hrísrima.

Eignin getur verið laus við kaupsamning. Mikil tækifæri.

Vel skipulögð og björt fjögurra herbergja íbúð á annari hæð miðsvæðis í Grafarvoginum. Stæði í lokaðri bílageymslu fylgir með íbúðinni.

Komið er inn í rúmgóða flísalagða forstofu með stórum skáp.

Baðherbergið er með baðkari og snyrtilegri innréttingu. Flísar eru á gólfi og hluta af veggjum.

Eldhúsið er með hvítri innréttingu og góðri vinnuaðstöðu. Innst í eldhúsinu er góður borðkrókur.

Stofan er rúmgóð og björt, úr stofunni er útgengt út á svalir.

Svefnherbergin eru þrjú, stórir skápar eru í hjónaherbergi.

Sér þvottahús er í íbúðinni.

Sér geymsla er í kjallara ásamt sameiginlegri hjóla og vagnageymslu.

Stæði í lokaðri bílageymslu fylgir með eigninni.

Þetta er snyrtileg vel skipulögð eign á frábærum stað þar sem stutt er í alla þjónustu.

Búið er að yfirfara glugga og skipta um þá sem ekki voru í lagi.

Vantar allar gerðir eigna á skrá. Fagleg og góð þjónusta.

Nánari upplýsingar veitir:

Jósep Grímsson löggiltur fasteignasali

Fasteignasalan Grafarvogi

S: 863-1126

Josep@fastgraf.is

[link]