Árbraut 12

276 Mosfellsbær

Ásett verð: 74.900.000 kr.

Árbraut 12
Tegund
Sumarhús
Stærð
75,7999996185303 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
2
Byggingarár
1980
Fermetraverð
988.127 kr.

Lýsing

Glæsilegt og vel við haldið sumarhús á eignarlóð við Árbraut 12 í Kjósinni

Húsið stendur á 1.730 fm eignarlóð í aðeins um 45 mínútna fjarlægð frá borginni.

Birt flatarmál er alls 75,8 fm skv. HMS.

Til viðbótar hefur verið gerð viðbygging við húsið og einnig geymslur/gestahús.

Heildar fermetrar húsa á lóðinni eru í raun um 100 fm.

Skipulag hússins:

- Forstofa með fatahengi

- Tvö svefnherbergi

- Baðherbergi með sturtu og útgengi á pall með heitum potti og Saunu.

- Bjart og opið alrými með eldhúsi og stofu með útg. á stóran sólpall

- Kamína með nýlegu reykröri er í alrýminu.

Viðhalds- og endurbætur (2005–2008 og síðar):

- Húsið var stækkað og allar verandir endurnýjaðar og stækkaðar

- Skipt um alla útiklæðningu

- Allir gluggar og útihurðir endurnýjaðir

- Þak endurnýjað með nýju járni og pappa

- Ný og stærri rotþró sett

- Rafmagn tekið inn og uppfært, m.a. þriggja fasa rafmagn

- Hitaspírall fyrir heitt vatn

- Loftvarmadæla sett upp fyrir ca. þremur árum

Aukarými á lóðinni:

Tvö gestahús.

Köld geymsla með rafmagni

Þvottageymsla / verkfærageymsla með góðu aðgengi og rafmagni

Annað:

Lóðin er afgirt allan hringinn með stóru járnhliði að framan og timburhliði að aftan

Hitaveita og ljósleiðari eru komnir út í götu – möguleiki á tengingu

Staðsetning og umhverfi:

Kjósin er einstaklega friðsælt svæði með mikla náttúrufegurð, stutt í ár, vatn og gönguleiðir. Húsið er vel staðsett innan svæðisins.

Nánari upplýsingar veitir Aron Freyr Eiríksson löggiltur fasteignasali í síma 772-7376 / aron@as.is

Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.

[link]

[link]

[link]