Sóleyjargata 21
101 Reykjavík

- Tegund
- Einbýlishús
- Stærð
- 235,1 m²
- Herbergi
- 8
- Svefnherbergi
- 5
- Baðherbergi
- 2
- Byggingarár
- 1933
Lýsing
Einstaklega sjarmerandi og tignarlegt einbýlishús á eftirsóttum stað á eignarlóð við Sóleyjargötu í Þingholtunum. Eignin er skráð 235,1 fm., steinsteypt einbýlishús byggt árið 1933 af góðum efnum. Húsið er á tveimur hæðum auk kjallara og er í dag auka íbúð í kjallara með sér inngangi. Falleg eign með stórum suður garði nálægt miðbær Reykjavíkur, í göngufæri er leikskóli, skóli og ýmis þjónustu.
Nánar um eignina:
Aðalinngangur inn í húsið er á miðhæð sem er skráð 94,1fm. og skiptist þannig:
Anddyri með flísum á gólfi.
Gestasalerni með glugga og dúkur á gólfi.
Hol rúmgott og tengist öllum vistaverum hæðarinnar með fallegum parketlögðum stiga sem liggur upp á efri hæð hússins.
Samliggjandi stórar stofur með parketi á gólfi. Úr annarri stofunni er útgengt út á svalir og þaðan út í garð.
Herbergi mjög rúmgott með dúk á gólfi.
Eldhús með snyrtilegri innréttingu, upprunaleg eldavél, gufugleypir og flísar á gólfi. Gengið er úr eldhúsinu niður í kjallara hússins.
Gengið er upp fallegan parketlagðan stiga á efri hæð sem er skráð 88,5 fm. og skiptist þannig:
Komið er upp fallegan stiga upp á stigapall og á hæðinni eru fjögur svefnherbergi.
Hjónaherbergi mjög rúmgott með teppi á gólfi. Útgengt er út á suðursvalir úr herberginu.
Inn af hjónaherbergi er innangengt inn á baðherbergi, gott skápapláss er á milli hjónherbergis og baðherbergis. Einnig er innangengt úr herberginu inn í annað svefnherbergi.
Svefnherbergi með teppi á gólfi og er einnig innangengt úr herberginu inn í hjónaherbergið.
Baðherbergi með baðkari með sturtuaðstöðu, gluggi, vaskur og flísar á gólfi.
Gestasalerni er við hliðina á baðherberginu.
Eldhúsaðstaða er á hæðinni og er í dag sturtuklefi inn í rýminu.
Tvö rúmgóð svefnherbergi með lökkuðu gólfi.
Geymsluloft er yfir hæðinni.
Í kjalla er innangengt úr eldhúsi sem og sér inngangur að utan, kjallari er skráður 52,5 fm. og skiptist þannig:
3ja herbergja íbúð er í kjallara með stórri rúmgóðri stofu, rúmgott svefnherbergi, eldhús og baðherbergi með sturtuklefa.
Þvottahús, þurrkherbergi og mjög gott geymslurými er í kjallaranum.
Lóðin í kringum húsið er skráð 475,1fm. með stór suður garði í góðri rækt.
Einstaklega vandað og fallegt einbýlishús í eigu sömu fjölskyldunnar frá upphafi á þessum einstaka stað í hjarta Reykjavíkur.
Allar nánari upplýsingar veitir Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 8995949 eða á netfanginu gudbjorg@trausti.is