Strandgata 25

735 Eskifjörður

Ásett verð: 49.800.000 kr.

Strandgata 25
Tegund
Einbýlishús
Stærð
167,8 m²
Herbergi
6
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
0
Byggingarár
1923
Fermetraverð
296.782 kr.

Lýsing

Lf-fasteignasala/Lindin fasteignir s. 893-1319 og Þórdís Pála Reynisdóttir löggiltur fasteignasali thordis@lindinfasteignir.is kynna:

Strandgata 25, Eskifirði. Guðnahús.

Reisulegt og fallegt einbýli með 3 svefnherbergjum og nýlegu baðherbergi á efstu hæð.

Baðherbergið er með góðri sturtu og eru plötur með flísaáferð á veggjum.

Á aðalhæð hússins er eldhús með nýlegri innréttingu (lokafrágang vantar).

Einnig 3 samliggjandi stofur, hægt að nota eina sem svefnherbergi, forstofa og gestasnyrting. Forstofan og gestasnyrtingin eru í endurbyggðri viðbyggingu og er frágangi ekki að fullu lokið.

Geymsluskúr sem er skráður sem bílskúr en hefur ekki aðgengi fyrir bíl er á lóðinni en er við Bleiksárhlíð.

Neðan við húsið er stór sólpallur með skjólveggjum.

Í kjallaranum var pizzabakarí og er hægt að fá pizzaofninn keyptan.

Húsið stendur á stórri eignarlóð sem væri hugsanlega hægt að skipta í 2 lóðir og þá yrði önnur við Bleiksárhlíð.

Hitaveita er í húsinu.