Kvistalundur 8

806 Selfoss

Ásett verð: 48.900.000 kr.

Kvistalundur 8
Tegund
Sumarhús
Stærð
73,4 m²
Herbergi
2
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Byggingarár
1970
Fermetraverð
666.213 kr.

Lýsing

LIND Fasteignasala og Guðmundur Hallgrímsson, löggiltur fasteignasali, kynna: Kvistalund 8

Fallegt sumarhús á frábærum stað við Þingvallavatn.

Húsið er skráð 73,4 fm. Stór hluti hússins er nýleg reist viðbygging.

Á lóðinni eru auk þess tveir geymsluskúrar bæði ca 10fm frá 2010 og 2023 bæði með einangruð gólf á steyptum súlum, frostfrítt.

Góð loftun í skúrunum, eldra húsið er með góðum palli kringum húsið og hitt minni pall. Ljós og tenglar í eldra húsinu, tilvalið til að breyta í gestahús.

*Stór & gróin lóð 4400fm.

*Eignalóð.

*Nýlegar endubætur að stærstum hluta.

*Frábær staðsetning.

*Aðgengi fyrir fatlaða.

Skipulag:

Forstofa, tvö samtengd alrými og baðherbergi. Í öðru alrýminu hefur verið útbúið svefnherbergi með léttum vegg, en í hinu er eldhús og stofa með rennihurð út á rúmgóðan pall. Baðherbergið er með sturtu, salerni og baðinnréttingu.

Auðvelt er að bæta við öðru svefnherbergi ef óskað er.

Á lóðinni er gott bílastæði og tveir geymsluskúrar. Stutt er niður að Þingvallavatni þar sem njóta má fallegrar náttúru og útivistar.

Nánari upplýsingar veita:

Andri Freyr Halldórsson lögg. fasteignasali / 762-6162 / ANDRI@FASTLIND.IS

Guðmundur Hallgrímsson, lögg fasteignasali / 898 5115 / GUDMUNDUR@FASTLIND.IS

Gjöld sem kaupandi greiðir við kaupin:

Stimpilgjald af kaupsamningi: 0,4% fyrir fyrstu kaup, 0,8% fyrir einstaklinga og 1,6% fyrir lögaðila, miðað við heildarfasteignamat.

Lántökugjald af veðskuldabréfi, samkvæmt gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.

Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl., kr. 3.800 fyrir hvert skjal.

Umsýslugjald til fasteignasölu, kr. 74.900.