Búðavegur 46

750 Fáskrúðsfjörður

Búðavegur 46
Tegund
Einbýlishús
Stærð
86,9 m²
Herbergi
5
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Byggingarár
1928

Lýsing

Lf-fasteignasala/Lindin fasteignir s. 893-1319 og Þórdís Pála Reynisdóttir löggiltur fasteignasali thordis@lindinfasteignir.is kynna:

Búðavegur 46, ÞINGHOLT, Fáskrúðsfirði.

Snyrtilegt eldra einbýli sem skiptist í kjallara, hæð og ris.

Afgirtur sólpallur er vestan við húsið.

Gengið er inn á miðhæð hússins.

Forstofa og búr eru í viðbyggingu ofan við húsið. í forstofunni er góður fataskápur.

Úr forstofunni er komið inn á gang, þaðan er stigi niður í kjallarann og upp í risið.

Af ganginum er gengið inn í eldhús og tvöfalda stofu eftir endilangri suðurhlið hússins.

Eldhúsið og stofa mynda vel opna heild og er nýlegt parket á gólfum.

Stigi er frá ganginum upp í rishæð þar sem eru 2 svefnherbergi og þarf að ganga í gegn um annað herbergið til að komast í hitt.

Rishæð hússins er að miklu leiti upprunaleg.

Inngangur er í kjallarann, beint inn í rúmgott svefnherbergi eftir endilangri suðurhlið hússins.

Í herberginu er góður nýlegur fataskápur og nýlegt parket á gólfi.

Baðherbergi er í kjallaranum og er það flísalagt og með baðkari.

Í kjallaranum er einnig snyrtilegt þvottahús með máluðu gólfi.

Gróin lóð með trjágróðri tilheyrir húsinu.