Dúfnahólar 2
111 Reykjavík
Ásett verð: 69.900.000 kr.

- Tegund
- Íbúð í fjölbýli
- Stærð
- 108,4 m²
- Herbergi
- 4
- Svefnherbergi
- 3
- Baðherbergi
- 1
- Byggingarár
- 1974
- Fermetraverð
- 644.834 kr.
Lýsing
RE/MAX, HERA BJÖRK Lgf. ( herabjork@remax.is / 774-1477 ) & SALVÖR ÞÓRA Lgf. ( salvor@remax.is / 844-1421 ) KYNNA (english below):
Einstaklega rúmgóð og björt 4ra herbergja íbúð á 6. hæð í lyftuhúsi við Dúfnahóla 2 í Breiðholti með stórbrotnu útsýni yfir Reykjavík, Faxaflóa og til fjalla. EIgnin er tóm og laus til afhendingar við kaupsamning.
Helstu kostir 108,4 m² 4ra herbergja íbúð á 6. hæð
Útsýnið er í algjöru aðalhlutverki
Rúmgóð fjölskyldueign með mikla möguleika
Gegnheilt fiskibeinaparket og nýlegir gluggar
Lyftuhús, yfirbyggðar svalir og sérgeymsla í kjallara
Frábær staðsetning – stutt í skóla, þjónustu og samgöngu
** SMELLIÐ HÈR fyrir nánari upplýsingar og/eða fyrir skráningu í OPIÐ HÚS - ATH! Skrá þarf mætingu fyrirfram í Opið Hús **
Ef forföll verða biðjum við um að þau séu tilkynnt svo við getum tekið tillit til þess við skipulagningu sýningarinnar.
Berist engar skráningar fellur opna húsið niður með 24 klst. fyrirvara.
Nánar um eign
Samkvæmt fasteignaskrá er birt stærð eignarinnar 108,4 m², þar af er íbúðin sjálf 102,9 m². Íbúðin er vel skipulögð með þremur svefnherbergjum, rúmgóðri stofu og borðstofu, sér eldhúsi, baðherbergi, 6,4 m² yfirbyggðum svölum og góðri 5,5 m² sérgeymslu í kjallara. Eignin nýtur mikillar birtu og víðáttumikils útsýnis sem setur sterkan svip á stofu og borðstofu.
SMELLTU HÉR - skoða eignina í - 3D - MEÐ HÚSGÖGNUM
SMELLTU HÉR - skoða eignina í - 3D - ÁN HÚSGAGNA
Nánari lýsing
Anddyri/hol:
Komið er inn í rúmgott parketlagt andyri með fataskáp og fatahengi. Úr holi er gengið inn í öll rými íbúðarinnar, svefnherbergisgang annars vegar og alrými hinsvegar.
Stofa og borðstofa: Mjög rúmgott og bjart alrými með fallegu fiskibeinaparketi. Stórir gluggar hleypa mikilli birtu inn og héðan nýtur eignin sín best með víðáttumikið útsýni yfir borgina, til sjávar og fjalla. Útgengi er að svölum frá borðstofu.
Eldhús: Rúmgott sér eldhús með innréttingu beggja vegna og góðu skápaplássi. Hvítir frontar eru paraðar við hlýlegan við og viðarborðplötur. Góð vinnuaðstaða og rými fyrir minni bor
Baðherbergi: Bjart og snyrtilegt endurgert baðherbergi, flísalagt í hólf og gólf. Sturtuklefi, upphengdur vaskaskápur með 2 skúffum og góð aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara. Rafmagn og pípulagnir endurnýjaðar.
Hjónaherbergi: Rúmgott hjónaherbergi með parketi og miklum innbyggðum fataskápum eftir heilum vegg.
Svefnherbergi II: Bjart herbergi með eldri innbyggðum skápum og parketi á gólfi sem nær undir skápa. Góður gluggi sem nýr út í garð. Hentar vel sem barnaherbergi, gestaherbergi eða vinnuherbergi.
Svefnherbergi III: Gott þriðja herbergi með parketi sem býður upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika.
Svalir: Svalir eru skráðar 6,4 m², eru yfirbyggðar og þaðan má njóta stórkostlegs útsýnis yfir borgina og nágrennið.
Sérgeymsla: Sérgeymsla í kjallara er 5,5 m². Í sameign er jafnframt þvotta- og þurrkherbergi ásamt hjóla- og vagnageymslu.
Húsið og viðhald
Húsið er steinsteypt fjölbýlishús frá 1974. Samkvæmt upplýsingum frá formanni húsfélagsins hefur verið ráðist í umfangsmikið viðhald síðustu ár, m.a. endurnýjun glugga, þaks og gangstétta ásamt nýrri uppbyggingu við svalir. Fyrirhugaður er síðar viðgerðarpakki vegna múrvinnu og málunar, en samkvæmt fyrirliggjandi upplýsingum hefur sú framkvæmd ekki verið samþykkt né verið kallað eftir tilboðum í hana enn.
Nánar um viðhald - Húsfélagið Dúfnahólar 2-4:
2017 - Skipt um alla glugga garðmegin og settir í staðinn Rehau plastgluggar og einnig skift um útidyrahurðir bílastæða og garðmegin. Svalir ekki með í þessari framkvæmd.
2019 - Skipt um allar járnplötur á þaki hússins ásamt þakpappa og settar í staðinn Aluzink járnplötur og nýjar lofttúður settar og einnig fjölgað þakrennu rörum. Innviðir þaksins voru í góðu ásigkomulagi.
2020 - Skipt um gangstétt meðfram húsinu bílastæða megin og sett í staðin hellulögð stétt með snjóbræðslu undir. Einnig sett 2 metra breið og 16 metra löng snjóbræðsla undir hellu stéttina garðmegin í Dúfnahólum 2. sem nær frá tröppunum og að malbikuðu stéttinni. Affallið af hitaveituvatni hússins er nýtt til að hita upp stéttarnar.
2021 - Skipt um alla herbergis og eldhúsglugga bílastæða megin og settir í staðinn Rehau plastgluggar.
2025-2026 - Rifnar og fjarlægðar gamlar timbur og gler yfirbyggingar svala og byggðar nýjar úr stáli, áli, gleri,Viroc steypuplötum og steinull.
Húsfélagið Dúfnahólar 2
2023 - Skift um lyftu og sett ný Schindlers lyfta.
2024 - Innkomugangar að framan og bakvið málaðir.
2024 - Skift um alla ofna í sameign og í húsfélags íbúðinni.
2026 - Skift út gömlu dyrasímakerfi og sett upp mynddyrasímakerfi.
Samantekt
Rúmgóð fjölskyldueign á 6. hæð þar sem útsýnið er í algjöru aðalhlutverki. Þrjú svefnherbergi, góðar stofur, vandaðir innviðir, mikið skápapláss og stórir gluggar skapa bjarta og skemmtilega eign með mikla möguleika. Staðsetningin er jafnframt þægileg með skóla, leikskóla, verslun og fjölbreytta þjónustu og útivist í næsta nágrenni.
Athygli er vakin á því að eignin er hluti af dánarbúi og hafa erfingjar ekki búið í eigninni. Þeir geta því ekki veitt tæmandi upplýsingar um ástand hennar, búnað eða einstaka hluta. Kaupendur eru hvattir til að skoða eignina sérstaklega vel og kynna sér ástand hennar með ítarlegum hætti, eftir atvikum með aðstoð fagaðila, áður en tilboði er skilað.
Í 3D getur þú skoðað eignina hvar sem þú ert í þrívíðu umhverfi, ferðast auðveldlega á milli herbergja og kynnt þér rýmið.
Allar nánari upplýsingar og bókun á skoðun veita:
Hera Björk, lgf. í síma 774-1477 á milli kl. 10 og 18 alla virka daga eða á netfangið herabjork@remax.is
Salvör Þóra, lgf.í síma 844-1421 á milli kl. 10 og 18 alla virka daga eða á netfangið salvor@remax.is
A short description in English:
Spacious and bright 4-room apartment on the 6th floor of a well-maintained building with an elevator at Dúfnahólar 2. The property measures 108.4 m² and offers three bedrooms, a generous living and dining area, separate kitchen, bathroom, balcony and private storage room.
A major highlight is the panorami…