Hólmatún 9 íbúð 101

600 Akureyri

Ásett verð: 74.900.000 kr.

Hólmatún 9 íbúð 101
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
97,4 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Byggingarár
2014
Fermetraverð
768.994 kr.

Lýsing

Hólmatún 9 íbúð 101, 600 Akureyri - Björt og vel skipulögð 3-4 herbergja íbúð á jarðhæð í Naustahverfi - Stærð 97,4m²

Eignin er staðsett á eftirsóttum stað í Naustahverfi þar sem stutt er í leikskóla, grunnskóla, verslun og aðra helstu þjónustu.

Nánari upplýsingar veitir Sigurður H. Þrastarson, 888-6661 , siggithrastar@kaupa.is

Íbúðin er vel skipulögð og skiptist í forstofu, eldhús og stofu í opnu rými, tvö svefnherbergi og geymslu sem nýtt er sem þriðja svefnherbergi í dag og baðherbergi með þvottaaðstöðu,

Forstofa flísalögð með góðum fataskáp.

Eldhús er með mjög rúmgóðri eikarinnrétting, bakarofn í vinnuhæð, helluborði, innbyggðum ísskáp sem og uppþvottavél. Stór gluggi til norðurs hleypir inn mikilli birtu. Flísar á gólfi

Stofa er í opnu rými með eldhúsi, þar er parket á gólfi og útgengt er úr stofu á steypta verönd.

Svefnherbergi eru skráð tvö, bæði eru með parketi á gólfum og góðu skápaplássi.

Geymsla er í dag nýtt sem svefnherbergi. Þar er parket á gólfi og fataskápur.

Baðherbergi er rúmgott en þar er góð innrétting undir vask og önnur innrétting þar sem stæði er fyrir þvottavél og þurrkara. Walk-in sturta, upphengt salerni. Flísar á gólfi og veggjum. Opnanlegur gluggi.

Sameiginlegur garður er við húsið og eigninni fylgir sérafnotaflötur sunnan við húsið, sem afmarkaður er á teikningum.

Annað:

- Vel staðsett eign í Naustahverfi.

- Jarðhæð með útgengi á verönd.

- Sameiginleg geymsla undir stiga sem og á háalofti.

- Þrjú nýtanleg svefnherbergi.

- Múrviðgert og málað að utan sumarið 2026.

- Stutt í skóla, leikskóla og verslun.

Um er að ræða vel skipulagða fjölskylduíbúð á vinsælum stað þar sem sameinast gott aðgengi, hagkvæm nýting fermetra og fjölskylduvænt umhverfi.