Barónsstígur 51

101 Reykjavík

Ásett verð: 72.900.000 kr.

Barónsstígur 51
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
86,4 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
1933
Fermetraverð
843.750 kr.

Lýsing

Eignin er seld - Vilt þú láta mynda og undirbúa eignina þína fyrir sölu án kostnaðar? - Smelltu hér

Baldur fasteignasali – Beinn sími 450-0000 kynnir: Bjarta og vel skipulagða þriggja herbergja íbúð á frábærum stað að Barónsstíg 51 í miðbæ Reykjavíkur. Eignin er samtals 86,40 fermetrar og henni fylgir herbergi í kjallara. Auka herbergi sem hentar til útleigu er í kjallara.

Íbúðin skiptist í forstofu/gang, stofu, borðstofu, rúmgott svefnherbergi, eldhús og baðherbergi.

Nánari lýsing:

Forstofa/gangur: Tengir rými íbúðarinnar saman.

Eldhús: Snyrtilegt eldhús með góðu skápa- og vinnuplássi ásamt borðkrók.

Stofa: Rúmgóð og björt stofa.

Borðstofa: Björt og rúmgóð. Möguleiki er á að nýta rýmið sem annað svefnherbergi.

Hjónaherbergi: Rúmgott með góðum fataskáp.

Baðherbergi: Flísalagt baðherbergi með baðkari með sturtu.

Herbergi í kjallara: Sérherbergi fylgir eigninni í kjallara og hefur verið leigt út margsinnis. Herbergið býður upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika, s.s. sem vinnuaðstöðu, gestaherbergi eða til útleigu. Sameiginlegt salerni með vaski er í kjallara.

Geymsla: Sérgeymsla fylgir íbúðinni í kjallara.

Sameign: Sameiginlegt þvottahús er í kjallara þar sem hver íbúð hefur aðstöðu fyrir eigin þvottavél og þurrkara. Þar er einnig sameiginlegt geymslurými sem m.a. hefur verið nýtt fyrir hjól og barnavagna. Aðeins þrjár íbúðir eru í stigaganginum. Sameiginlegur bakgarður með útgengi frá húsinu er á baklóð.

Framkvæmdir á húsinu undanfarin ár:

2011 var þak hússins að Barónsstíg 51 endurnýjað.

2023 var sameign og kjallari máluð, raflagnir yfirfarnar og ný ljós sett upp.

2024 var ný útidyrahurð sett upp við bakgarð.

Annað:

Um er að ræða vel skipulagða eign á frábærum stað í miðbæ Reykjavíkur. Stutt er í alla helstu þjónustu, verslanir, veitingastaði og kaffihús. Sundhöll Reykjavíkur og Hallgrímskirkja eru í næsta nágrenni og stutt er í Landspítalann, Klambratún og miðborgina.

Nánari upplýsingar veitir:

Baldur Jezorski – löggiltur fasteignasali

baldur@fastgardur.is / Beinn sími 450-0000

Skoða meðmæli - Verðmat fasteigna - Greiðslumat.is