Kerhólar 4

800 Selfoss

Ásett verð: 107.900.000 kr.

Kerhólar 4
Tegund
Parhús
Stærð
197,1 m²
Herbergi
5
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
2
Byggingarár
2014
Fermetraverð
547.438 kr.

Lýsing

ÁRBORGIR SELFOSSI S 482 4800 kynna í einkasölu:

Mjög skemmtilegt parhús á frábærum stað í eftirsóttu hverfi í nálægð við alla helstu þjónstu.

Húsið er timburhús, byggt árið 2014 að utan er það klætt með bárujárni, bárujárn er á þaki.

Heildarstærð eignarinnar er 197m2 og er sambyggður bílskúr skráður 31,5m2 þar af.

Að innan skiptist eignin í forstofu, 4 svefnherbergi, 2 baðherbergi, þvottahús, sjónvarpshol, eldhús og stofu auk bílskúrs.

Nánari lýsing:

Forstofan er með flotuðu golfi og er opin og björt.

Stofa og eldhús eru í opnu rými með smekklegri innréttingu og eyju. Í alrýminu er loftaklæðningin grófur hvítlakkaður viður með innfelldri lýsingu sem setur skemmtilegan svip á íbúðina.

Fjögur svefnherbergi eru í húsinu og eru þau öll parketlögð.

Tvö baðherbergi eru í húsinu og eru bæði með salerni, innréttingu og sturtu.

Þvottahús er innan íbúðar, þar eru flísar á gólfi. (ath. að hluti bílskúrs var nýttur til að stækka þvottahús um ca 6 fm).

Inni á svefnherbergisgangi er búið að stúka af sjónvarpshol , þar eru rúmgóðir fataskápar.

Innangengt er í bílskúr úr íbúðinni og er hann skráður 31,5 fm, geymsluloft er í skúrnum.

Viðarpallur er vestan við húsið og þar er heitur pottur.

Bjart og skemmtilegt fjölskylduhús á vinsælum stað á Selfossi. Stutt í skóla og leikskóla. (Unnið er að stækkun á þeim leikskóla)

Nánari upplýsingar á skrifstofu Árborga

arborgir@arborgir.is eða í síma 482-4800

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er: 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga. 0,4% fyrir fyrstu kaupendur og 1,6% fyrir lögaðila.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. kr. 3.800,- hvert skjal.

3. Lántökugjald lánastofnunar. Skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.

4. Umsýslugjald kaupanda skv. gjaldskrá.

5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.