Láland 8

108 Reykjavík

Ásett verð: 247.000.000 kr.

Láland 8
Tegund
Einbýlishús
Stærð
240,599999237061 m²
Herbergi
6
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
1
Byggingarár
1977
Fermetraverð
1.026.600 kr.

Lýsing

** HÉR GETUR ÞÚ BÓKAÐ SKOÐUN Á EIGNINA **

Þórdís Björk Davíðsdóttir löggiltur fasteignasali og RE/MAX kynna: - NÝTT Í SÖLU -

Einstaklega fallegt, rúmgott og vel skipulagt 240,6 fm einbýlishús á einni hæð á eftirsóttum stað við Fossvogsdalinn í Reykjavík. Eignin er með björtum og rúmgóðum stofum, vönduðu eldhúsi, fjórum svefnherbergjum með möguleika á fimmta, innangengum bílskúr og einstaklega skjólgóðum og grónum suðurgarði. Húsið hefur fengið gott viðhald og töluverðar endurbætur hafa verið framkvæmdar á undanförnum árum, meðal annars á eldhúsi, gluggum, þaki og gólfefnum.

Samkvæmt skráningum HMS er heildarflatarmál eignarinnar 240,6 fm sem skiptist í íbúðarrými 194,0 fm , bílskúr 29,8 fm.

ATH . HMS hefur skráð rými sem er undir verönd hússins 16,8 fm í fermetrafjölda hússins en seljendur eru að óska eftir að það verði leiðrétt og þar með mun fasteignamat eignarinnar lækka.

VERÐMAT MIÐAST VIÐ MÖGULEGAR BREYTINGAR Á SKRÁNINGU.

SMELLTU HÉR til að fá allar upplýsingar um eignina

--------------------

Framkvæmdir og endurbætur síðustu ára:

2009 - Stækkun hússins hönnuð af ÚTI INNI Arkitektum og teikningar samþykktar.

2009 - Framkvæmdir vegna stækkunar hússins.

2009 - Nýjar lagnir lagðar að eldhúsi og þvottahúsi vegna breytinganna.

2009 - Eldhúsið endurnýjað að fullu með sérsmíðaðri eikarinnréttingu og granítborðplötum.

2009 - Nýr þakdúkur settur á húsið og þakkanntur frá Ál og Zink

2009 - Loftaplötur endurnýjaðar.

2009 - Nýjar útdidyrahurðar: aðalinngangur, inn í bílskúrinn og inn í kalda geymslu (sem var gamla sorpgeymslan)

2009 - Allir gluggar hússins endurnýjaðir og Velfac-gluggar settir í húsið ásam Velfac rennihurð og svalahurðum í garðinn.

2009 - Quick-Step parket frá Harðviðarvali lagt á gólf.

2009-12 - Dregið nýtt rafmagn í húsið

2012 - Viðbygging hússins, hjónasvíta inn af stofu, fullgerð og klædd að utan með Zink plötum frá Ál og Zink; sama efni og í þakkannti.

2023–2025 - Íbúðarrýmið að mestu málað.

2026 - Innihurðir sprautulakkaðar hjá Sprautun.is og hurðakarmar málaðir af seljendum.

--------------------

SMELLTU HÉR - skoða eignina í - 3D - Með húsgögnum

SMELLTU HÉR - skoða eignina í - 3D - ÁN húsgagna

Láland 8 er einbýlishús á einni hæð, upphaflega teiknað af Kjartani Sveinssyni og byggt árið 1977. Árið 2009 var hönnuð stækkun á húsinu af ÚTI INNI arkitektum. Stækkunin fól meðal annars í sér stækkun á eldhúsi og viðbyggingu með hjónasvítu inn af stofu. Viðbyggingin var fullgerð árið 2012 og eru núgildandi teikningar hússins frá því ári.

Í eigninni eru í dag fjögur svefnherbergi, (möguleiki á því fimmta) stofa, borðstofa, eldhús, sjónvarpshol, baðherbergi, gestasalerni, forstofa, miðrými, þvottahús, geymsla og bílskúr. Samkvæmt teikningum eru fjögur svefnherbergi á herbergjagangi en tvö þeirra hafa verið sameinuð í eitt stórt herbergi. Því er möguleiki á að fjölga svefnherbergjum í fimm.

Nánari lýsing eignar:

Forstofa: Rúmgóð með góðum fataskápum og flísum á gólfi.

Gestasalerni: Er inn af forstofu með innréttingu undir handlaug, flísum á gólfi og veggjum og glugga til loftunar.

Miðrými : Opið og rúmgott miðrými sem tengir saman forstofu, stofu, borðstofu, eldhús, þvottahús og herbergjagang. Parket á gólfi.

Eldhús : Einstaklega rúmgott og vandað eldhús sem var endurnýjað að fullu árið 2009. Það er búið öllum helstu þægindum og býður upp á einstaklega gott vinnu- og geymslupláss. Sérsmíðuð eikarinnrétting með eyju og dökkri granítborðplötu bæði á eyju og veggfastri innréttingu. Einstaklega gott skápapláss er í innréttingunni, gott vinnurými, innbyggð uppþvottavél, rými fyrir bæði ísskáp og frystiskáp og geta 4-6 setið við eyjuna. Tækin : Í eyjunni eru 90 cm breitt AEG helluborð og 90 cm breiður AEG bakaraofn. Auk þess er Samsung bakaraofn á vegg í innréttingu. Sérstakur kaffibar (tækjaskápur) með rennihurð er skemmtileg viðbót við eldhúsið. Úr eldhúsinu er útgengt um rennihurð á skjólgóða verönd til suðurs. Tveir rafdrifnir hágluggar eru einnig í eldhúsinu.

Tækin : Í eyjunni eru 90 cm breitt AEG helluborð og 90 cm breiður AEG bakaraofn. Auk þess er Samsung bakaraofn á vegg í innréttingu. Sérstakur kaffibar (tækjaskápur) með rennihurð er skemmtileg viðbót við eldhúsið. Úr eldhúsinu er útgengt á skjólgóða verönd til suðurs.

Stofa og borðstofa: Eru samliggjandi í einstaklega björtu, opnu og rúmgóðu rými með stórum gólfsíðum gluggum sem veita góða birtu í rýmið og með parket á gólfi. Borðstofan er í sömu gólfhæð og eldhúsið en í stofuna þarf að fara niður eitt þrep.

Herbergi I: Skrifstofa / herbergi í viðbyggingu: Inn af stofunni er rúmgott herbergi sem samkvæmt teikningum er skilgreint sem hjónasvíta en nýtist í dag sem góð skrifstofa. Rýmið er eitt herbergi án sérbaðherbergis eða fataherbergis en þó er góður tvöfaldur fataskápur. Falleg tvöföld hurð með gleri er inn í herbergið og parket á gólfi. Viðbyggingin var fullgerð árið 2012.

Herbergjagangur: Á herbergjagangi eru í dag þrjú svefnherbergi en samkvæmt teikningum eru þau fjögur. Tvö herbergjanna hafa verið sameinuð í eitt stórt herbergi og er því möguleiki á að breyta skipulaginu aftur og fjölga svefnherbergjum í fjögur.

Herbergi II og III: Tvö herbergi sem hafa verið sameinuð í eitt stórt og rúmgott herbergi með parketi á gólfi.

Herbergi IV: Minnsta svefnherbergið með parketi á gólfi.

Herbergi V: Rúmgott og bjart hjónaherbergi með gluggum til tveggja átta, góðum fataskápum og parketi á gólfi. Úr herberginu er útgengt á verönd til suðurs.

Sjónvarpshol: Ágætis rými með parket á gólfi og rafdrifnum hágluggum sem veita góða birtu.

Baðherbergi: Rúmgott og vel búið baðherbergi með bæði baðkari og sturtu, handklæðaofni og góðri innréttingu undir og við handlaug sem er úr Corian. Flísar eru á gólfi og veggjum og rafdrifnir hágluggar veita náttúrulega birtu og góða loftun.

Þvottahús : Einstaklega rúmgott þvottahús með góðri innréttingu, vaski og miklu vinnu- og geymsluplássi. Flísar á gólfi og rafdrifnn hágluggi.

Geymsla : Góð geymsla er inn af þvottahúsi. Á milli þvottahúss og bílskúrs og er rafdrifinn hágluggi og flísar á gólfi.

B…