Staðarborg 17 A

190 Vogar

Ásett verð: 69.500.000 kr.

Staðarborg 17 A
Tegund
Lóð
Herbergi
0
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1

Lýsing

HLUTDEILDARLÁN Í BOÐI

Guðmundur Þór Júlíusson, Ástþór Reynir & Pétur Ásgeirs löggiltir fasteignasalar hjá RE/MAX fasteignasölu kynna í einkasölu: Staðarborg 17 A, 190 Vogar eignin telur 93 fm 4 herbergja raðhús á glæsilegum stað í vogunum.

Íbúðir skilast allar fullbúnar (samkvæmt skilalýsingu).

Staðarborg 17 eru 6 hús í raðhúsalengju með 2 bílastæðum fyrir framan hvert hús og stendur í nýju íbúðahverfi í Vogum, þar sem stutt er í alla helstu þjónustu — leik- og grunnskóla, íþróttasvæði, sundlaug og verslun.

Eignin er skráð 93 fm. og afhendist fullbúin með öllum gólfefnum. Sólpallur til vesturs út af stofu með skjólveggjum.

Eignin skiptist í forstofu, stofu, borðstofu/eldhús, þrjú svefnherbergi, geymslu/þvottahús og baðherbergi.

Afhending eignar er í júlí 2026.

-Gólfsíðir gluggar í alrými.

-Danfoss stýrikerfi fyrir gólfhita.

-Aukin lofthæð.

-Aðgangur er að hleðslustöð með hverri íbúð frá fyrirtækinu Amper ( amper.is)“

-Lagnaleið fyrir heitan pott.

-Tvö bílastæði eru fyrir framan hvert hús/Snjóbræðsla

Nánari lýsing:

Forstofa: Flísar á gólfum og rúmgóðum fataskápum.

Stofa og borðstofa: Parket á gólfi, er í opnu alrými með eldhúsi, rúmgóð stofa með útgengi á sólpall, lofthæð innan eignarinnar á hæsta punkt eru um fjórir metrar.

Eldhús: Er opið við stofu. Eldhúsinnrétting er frá HTH og tækin frá AEG. Span helluborð með viftu, ofn, innbyggð uppþvottavél og ísskápur með frysti.

Hjónaherbergi: Parket á gólfi og fataskáp.

Barnaherbergi 1: Parket á gólfi og fataskáp.

Barnaherbergi 2: Parket á gólfi og fataskáp.

Þvottahús/geymsla: Flísar á gólfi , er með tengi fyrir þvottavél og þurrkara og þar er vaskur.

Baðherbergi: Er flísalagt í hólf og gólf með 60x60 flísum, upphengt salerni, sturtuklefi og innrétting við vask með ljúflokun á skúffum.

Geymsla: Er einnig fyrir ofan baðherbergi, aðgengi frá einu svefnherbergjanna og er möguleiki að nýta rýmið sem svefnloft.

Lóð er tyrfð, verönd við bakhlið eru úr timbri (lerki) og er skjólveggur á milli húsa. Stéttir og bílastæði við aðkomuhlið íbúða eru hellulögn og snjóbræðsla er í gangstéttum.

Kaupendur greiða skipulagsgjald sem er 0,3% af endanlegu brunabótamati íbúðarinnar.

Allar nánari upplýsingar um eignina veitir:

Guðmundur Þór Júlíusson löggiltur fasteignasali í síma 858-7410 eða gj@remax.is

Pétur Ásgeirsson löggiltur fasteignasali í síma 893-6513 / petur@remax.is

Ástþór Reynir löggiltur fasteignasali í síma 899-6753 eða arg@remax.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.