Frostafold 99

112 Reykjavík

Ásett verð: 69.900.000 kr.

Frostafold 99
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
95,6 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Byggingarár
1986
Fermetraverð
731.172 kr.

Lýsing

Pálsson Fasteignasala kynnir:

4ja herbergja endaíbúð á efstu hæð í Grafarvogi. Stutt í alla helstu þjónustu eins og skóla, sundlaug og íþróttasvæði Fjölnis.

- 95,6m² skv. HMS á 3. og efstu hæð í Foldahverfi

- Mikið endurnýjuð íbúð með 3 svefnherbergjum

- Rúmgóðar svalir og sólskáli

Nánari upplýsingar veita:

Páll Pálsson Lgf. í S:775-4000 eða palli@palssonfasteignasala.is

Orri Hilmarsson astmf. S: í 615-3011 eða orri@palssonfasteignasala.is

Nánari lýsing:

Gengið er inn í forstofu. Frá forstofu er gengið inn á gang með eldhúsi á móti forstofu, baðherbergi og tveimur svefnherbergjum til hægri. Gengið er inn í stofu, úr stofu er sólskáli og svalir, gengið er inn í þriðja svefnherbergi úr stofu.

Stofa: Björt og rúmgóð stofa, parket er á gólfi og gluggar sem hleypa birtu inn í rýmið. Gengið er inn í sólskála úr stofu og úr stofu er útgengt á svalir.

Eldhús: Eldhús með korki á gólfi, helluborði, bakaraofni og pláss fyrir ísskáp.

Svefnherbergi I: Gengið er úr stofu inn í rúmgott svefnherbergi með parketi á gólfi.

Svefnherbergi II og III : Svefnherbergi með parketi á gólfi og gluggum sem hleypa birtu inn.

Baðherbergi: Baðherbergi er með flísum á gólfi, sturtubaði, klósetti og plássi fyrir þurrkara og þvottavél.

Svalir: Svalir með fallegu útsýni.

Sér geymsla í sameign

Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla

Íbúðin er endaíbúð á efstu hæð með gluggum á þremur hliðum og sólskála sem hleypir birtu inn.

Stutt í alla helstu þjónustu eins og skóla, sundlaug og íþróttasvæði Fjölnis.

Íbúðin er 95,6m² skv. HMS.

[link]

[link]

Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).

2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.

4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.