Hrannargata 4

400 Ísafjörður

Ásett verð: 79.500.000 kr.

Hrannargata 4
Tegund
Einbýlishús
Stærð
295,800000762939 m²
Herbergi
11
Svefnherbergi
5
Baðherbergi
2
Byggingarár
1930
Fermetraverð
268.763 kr.

Lýsing

Fasteignasala Vestfjarða s. 4563244 - eignir@fsv.is - [link] - kynnir til sölu - Hrannargata 4 Ísafirði - Fallegt steinsteypt einbýli, töluvert endurnýjað. Húsið er á fjórum hæðum, kjallari, 1. hæð, 2. hæð og rishæð.

Íbúðarhluti er samtals 257,6 m² og bílskúr er skráður 38,2 m². Samtals 295,8 m² að stærð.

Eignin gefur möguleika á góðum útleigutekjum!

1. hæð.

Aðalinngangur og forstofa.

Rúmgóð stofa og borðstofa með viðarfjölum á gólfi.

Lítið salerni.

Eldhús með eldri innréttingu og plastparketi á gólfi.

Inngangur bakatil og stigagangur.

2. hæð.

Þrjú herbergi á hæðinni og tvö þeirra rúmgóð.

Útgengt úr einu herbergi út á suðursvalir.

Baðherbergið er með harðparketi á gólfi og sturtuklefa.

Rishæð.

Búið að útbúa nokkurs konar séríbúð þar.

Eldhús sett upp í suðurenda rishæðar, ný innrétting og tæki.

Nýleg gólfefni eru í risinu og þar er baðherbergi með sturtu.

Stofan er með harðparketi á gólfi.

Kjallari

Í kjallara er þvottahús, salerni og rúmgóð rými sem bjóða upp á að útbúa íbúðarrými. Í stærra rýminu er eldhúsinnrétting, samliggjandi við stofurými.

Svefnherbergi er einnig í kjallara. Búið er að flota nær öll gólf og endurbæta pípulagnir og rafmagn.

Möguleiki á að útbúa séríbúð þar.

Bílskúr er sérstæður 38,2 m² að stærð með steyptu gólfi og bílskúrshurð.

Framkvæmdasaga seljanda:

Nýir gluggar í kjallaranum, nýtt gler á fyrstu hæð, nýir gluggar á annarri hæð að mestu, gamlir gluggar á efstu hæð.

Búið að kaupa alla glugga í húsið og beðið er eftir í setningu.

Allar rafmagnstöflur eru nýjar, nýtt rafmagn í öllu húsinu nema hluta kjallarans.

Rishæð: Búið að setja loftun í þakið og einangra það, hæðin alveg endurnýjuð að innan, búið að setja eldhúsinnréttingu , tengja ofn og helluborð í rafmagn. Glænýtt baðherbergi.

Önnur hæð: Nýtt baðherbergi, bláa herbergið hefur verið mikið endurnýjað, gula herbergið alveg tekið í gegn.

Fyrsta hæð: Nýtt loft í eldhúsinu, nýtt klósett, búið að láta teikna nýtt og stærra anddyri sem er búið að fá byggingarleyfi fyrir.

Kjallari: Búið að fjarlægja nánast allt gamalt þar út, flota stóra rýmið, verið að vinna í svefnherberginu og bað/þvottaherbergi (búið að pípa og endurnýja nánast allt rafmagn í þeim herbergjum). Ný eldhúsinnrétting. Búið að setja nýja hurð að aftan.

Að utan: Búið að steypa nýjar kjallaratröppur garðmegin, gera við tröppur upp að bakdyrum og smíða nýtt handrið þar.

Nánari lýsing framkvæmda í söluyfirliti.