Hrísabrekka 27

301 Akranes

Ásett verð: 31.900.000 kr.

Hrísabrekka 27
Tegund
Sumarhús
Stærð
53,4 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Byggingarár
2005
Fermetraverð
597.378 kr.

Lýsing

** Hafðu samband og bókaðu tíma fyrir skoðun - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 **

Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Fallegt sumarhús á góðum stað við Hrísabrekku 27 í landi Eyrar í Svínadal, Hvalfjarðarsveit. Eignin er skráð 53,4 m2 að stærð en auk þess er kaldur geymsluskúr á timburverönd sem er ekki inn í fermetratölu. Húsið skiptist í forstofu, stofu, eldhús, þrjú svefnherbergi og baðherbergi. Kynding er með varmadælu og rafmagnsofnum. Góð timburverönd er við húsið með heitum rafmagnspotti. Innbú fylgir utan persónulegra muna. Húsið stendur á 4.300 m2 leigulóð, ofarlega í sumarhúsabyggðinni Hrísabrekku, með glæsilegu útsýni. Svæðið er lokað með símahliði. Aðeins um 45 mínútna akstur frá höfuðborgarsvæðinu.

Nánari lýsing:

Forstofa : Parket á gólfi og fataskápur.

Stofa: Parket á gólfi og útgengt á timburverönd.

Eldhús: Parketi á gólfi, innrétting, vaskur, ofn, helluborð og ísskápur. Opið við stofu.

Svefnherbergi 1: Parket á gólfi, rúm og kojurúm þar fyrir ofan.

Svefnherbergi 2: Parket á gólfi og rúm.

Svefnherbergi 3: Parket á gólfi og rúm.

Baðherbergi: Flísadúkur á gólfi, innrétting með handlaug, sturtuklefi og salerni. Forhitari á sturtu. Tengi fyrir þvottavél.

Geymsluskúr er á verönd. Rúmgott bílastæði er framan við hús.

Helstu rekstrargjöld:

Sumarbústaðafélag : 55 þkr. árið - viðhald og rekstur á stofnlögnum og vegum er m.a. inn í því. Lóðarleiga : 229 þkr. árið. Fasteignagjöld 2026 : 155 þkr. árið. Brunatrygging : 37 þkr. árið. Rafmagn : 6 þkr. ca. mánuður.

Samkvæmt upplýsingum frá sumarbústaðarfélaginu Eyrarskógur/Hrísabrekka eru engar stórar framkvæmdir fyrirhugaðar á vegum félagsins, aðeins viðhald og rekstur. Á vefsíðu félagsins má finna helstu upplýsingar ásamt fundargerðum o.fl. [link]

Verð kr. 31.900.000,-