Dugguvogur 13

104 Reykjavík

Ásett verð: 133.300.000 kr.

Dugguvogur 13
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
171,4 m²
Herbergi
5
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
2
Byggingarár
2023
Fermetraverð
777.713 kr.

Lýsing

* 2 ÍBÚÐIR 4ra og 2ja herbergja á einu fasteignanúmeri* Báðar íbúðir með yfirbyggðum svölum, sér inngangi (hægt að opna á milli íbúða) glæsilegum innréttingum og gólfefnum. 1 stæði í bílageymslu með hleðslustöð fylgir en möguleiki er á að kaupa annað bílastæði við hliðina á því sem fylgir fyrir 5 milljónir. Þá er heildar verðið kr. 138.300.000.- Frábært tækifæri fyrir stóra fjölskyldu eða fyrir þá sem vilja leigutekjur.

* BÓKIÐ EINKASKOÐUN** Elín Alfreðsdóttir lgf í síma 8993090 eða elina@valholl.is

Stærri íbúðin er með þremur svefnherbergjum og minni íbúðin er með einu svefnherbergi.

Báðar íbúðir eru með yfirbyggðum svölum, vel búnar vönduðum tækjum og innréttingum, gott skipulag og fallaeg gólfefni.

Birt stærð hjá HMS er í 171,4 fm með geymslunni sem er skráð 17,2 fm. og til viðbótar eru óskráðir fermetrar yfirbyggðra svala um 13,4 fm, samtals því heildarstærð eignar u.þ.b. 184,8 fm.

ásamt aðgangi að hjóla- og vagnageymslum í sameign.

Nánari lýsing:

Íbúð nr. 104 er á jarðhæð hússins, inngangur í minni íbúðina er með sér inngangi við hliðina á aðalinngangi hússins. Aðgengi er því mjög gott. Skiptast íbúðirnar þannig að

stærri íbúðn er með anddyri/forstofu og þar er hurð inní minni íbúðina, (einnig sér inngangur utanfrá í minni íbúðina), þremur svefnherbergjum, glæsilegu alrými með eldhúsi, eyju, borðstofu og stofu en frá stofu er gengið út á 6,7 fm yfirbyggar svalir. Baðherbergi með góðri sturtu og þvottahús innaf baði, rennihurð er þar á milli.

Minni íbúðin með einu svefnherbergi, baðherbergi með sturtu og alrými með eldhúsi/borðstofu/stofu, útgengt út á yfirbyggðar svalir. Minni íbúðin er með sérinngangi og í þeirri forstofu er tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Bílastæði með hleðslustöð fyrir rafbíl er í bílageymslu. Auka bílstæði er til sölu fyrir 5 milljónir fyrir þá sem þurfa 2 bílastæði. Það bílastæði er staðsett við hliðna á bílastæðinu sem fylgir.

Húsið var byggt 2023 af ÞG Verk.

Um innréttingar og tæki:

Innréttingar: Í eldhúsum og baðherbergjum eru frá þýska framleiðandanum Nobilia og fataskápar frá GKS smíðaverkstæði. Lýsing undir efri skápum í eldhúsi.

Eldhústæki: Í báðum búðunum fylgja vönduð eldhústæki af gerðinni AEG, span helluborð, innbyggðum kæliskáp, innbyggðri uppþvottavél, blástursofni og háfi yfir báðum helluborðum.

Húsið er steinsteypt og útveggir einangraðir að utan, klæddir með báru-álklæðningum eða sléttum-álklæðningum sem tryggir lágmarks viðhald húsanna. Gluggar eru ál/tré kerfi og glerjaðir með K-gleri. Innveggir aðrir en steyptir eru úr hleðslusteini.

Frábær kostur fyrir þá sem kjósa að búa í eign þar sem möguleiki er á leigutekjum, eða fyrir fjölskyldu með þörf fyrir 2 íbúðir.

Frábær staðselning með tengingu við náttúruna. Hjóla- og göngustígar liggja meðfram ströndinni sem og upp í Elliðaárdal. Þá er Laugardalurinn innan seilingar. Göngufæri í Bónus Menntaskólann við Sund svo eitthvað sé nefnt.

Upplýsingar veitir Elín Alfreðsdóttir löggiltur fasteignsali í sima 8993090 eða elina@valholl.is