Suðurgata 24

230 Reykjanesbær

Ásett verð: 69.900.000 kr.

Suðurgata 24
Stærð
168,299999237061 m²
Herbergi
7
Svefnherbergi
5
Baðherbergi
1
Byggingarár
1956
Fermetraverð
415.330 kr.

Lýsing

ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu – Suðurgata 24, Reykjanesbæ

Um er að ræða fallega og rúmgóða eign í þríbýlishúsi, staðsetta í hjarta Keflavíkur. Eignin er á efstu hæð með sérinngangi og býður upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika, m.a. góða útleigumöguleika.

*** Stúdíóíbúð í bílskúr (ósamþykkt) – góðir útleigumöguleikar

*** Nýlega endurnýjað eldhús og baðherbergi

*** Suðursvalir

*** Gott geymslupláss í risi

Nánari upplýsingar veita:

Halla Vilbergs Löggiltur fasteignasali, í síma 772-7930 og á netfanginu halla@allt.is

Páll Þorbjörnsson Löggiltur fasteignasali, í síma 560-5500, tölvupóstur pall@allt.is.

Skipulag eignar:

Gengið er upp steyptar tröppur að sérinngangi. Við tekur stigagangur með steinteppi og fallegu járnhandriði sem leiðir upp í íbúðina.

Forstofa/gangur: M eð aðstöðu fyrir fatahengi á palli.

Eldhús: Smekklega endurnýjað með fallegri innréttingu þar sem viður og hvítur litur fara saman. Granítborðplötur, eyja með helluborði, bakaraofn í vegg, djúpur vaskur og innbyggð uppþvottavél og ísskápur.

Hjónaherbergi: Rúmgott með parketi og nýlegu fataherbergi inn af.

Svefnherbergi: Þrjú barnaherbergi, öll parketlögð. Fataskápar í einu þeirra.

Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. Baðkar með sturtu og glerþili, upphengt salerni. Aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara.

Ris : Gott geymslupláss með niðurdraganlegum stiga.

Rúmgóður bílskúr þar sem útbúin hefur verið stúdíóíbúð (ósamþykkt) með nýlegum gólfefnum og innréttingum.

Sameiginlegt þvottahús er í kjallara. Eignaskiptayfirlýsing er til frá árinu 1999 .

Endurbætur og viðhald sem eignin hefur fengið.

*** Eldhús endurnýjað árið 2006.

*** Baðherbergi endurnýjað árið 2006.

*** Rafmagn endurnýjað að hluta árið 2006.

*** Þak hússins endurnýjað að hluta árið 2005.

*** Húsið málað að utan árið 2017.

*** Stúdíóíbúð útbúin í bílskúr um árið 2019

*** Þak húss endurnýjað að hluta árið 2005

*** Raflagnir endurnýjaðar að hluta árið 2006

*** Þak á bílskúr hefur verið endurnýjað að hluta.

Eignin er staðsett miðsvæðis í Keflavík þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, skóla, leikskóla, verslanir, heilbrigðisþjónustu og fjölbreytta afþreyingu.

Falleg og vel við haldin eign með mikla möguleika á góðum stað í Keflavík.