Tröllahraun 42

810 Hveragerði

Ásett verð: 53.900.000 kr.

Tröllahraun 42
Tegund
Raðhús
Stærð
115,1 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Byggingarár
2026
Fermetraverð
468.288 kr.

Lýsing

Betri Stofan fasteignasala kynnir nýtt í sölu: Vel skipulagt endaraðhús á einni hæð í nýju hverfi undir Hamrinum í Hveragerði. Húsið er vel skipulagt, 115,1 fm og telur skv. teikningu gott opið alrými, stofu og eldhúsrými (stofa, eldhús og hol um 50 fm) þrjú svefnherbergi (eitt þeirra skráð geymsla), baðherbergi, forstofu og sér þvottahús.

Nánari lýsing:

Húsið er timburhús með steyptum veggjum á milli húsa.

Afhending m.v rúmlega fokhelt: Húsið skilast fullbúið að utan með grófjarnaðri lóð, húsið er klætt með báru, gluggar eru ál/tré og þakkantur er klæddur með áli. Sorptunnuskýli fylgir. Að innan skilast húsið rúmlega tilbúið til innréttinga, gólfhiti er ísteyptur í plötu, inntök fyrir rafmagn og vatn er komin inn í húsið.

Einnig er hægt að semja um að fá húsið afhent tilbúið til innréttinga, skv. nánara samkomulagi og skilalýsingu.

Þetta er vel skipulagt hús á fallegum stað í Hveragerði - tilbúið til afhendingar strax.

Allar nánari upplýsingar veita:

Jason Kristinn Ólafsson löggiltur fasteignasali í síma 775-1515 eða jason@betristofan.is

Sverrir Sigurjónsson lögmaður og löggiltur fasteignasali í síma 662-4422 eða ss@betristofan.is