Brattagata 3

900 Vestmannaeyjar

Ásett verð: 77.700.000 kr.

Brattagata 3
Tegund
Einbýlishús
Stærð
154,2 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Byggingarár
1957
Fermetraverð
503.891 kr.

Lýsing

Halldóra Kristín Ágústsdóttir löggiltur fasteignasali sími 8611105- dora@eyjaeignir.is og Eyjaeignir fasteignasala kynna í einkasölu: Bröttugötu 3 sem er fallegt og mikið endurnýjað einbýlishús á tveim hæðum í Vestmannaeyjum. Húsið er byggt úr steini árið 1957 er skráð 154,2 m2 þar ef er bílskúr skráður 22 m2 byggður árið 1967. Efri hæðin hefur nánst öll verið tekin í gegn, má þar nefna eldhús, baðherbergi, gólfefni, innihurðar, rafmagn og lagnir. Á efri hæð voru veggir endurnýjað inn að steini, veggir og loft einangrað, ný grind klædd með farmacell. Síðasta sumar var járn á þaki endurnýjað. Flestir gluggar hafa verið endurnýjaðir, ný útidyrahurð frá skanva. Á efri hæðinni er mikil lofthæð, hiti í gólfum, glæsilegt eldhús með Taj mahal steini frá steinlausnum, stór gluggi með einstöku útsýni. Neðri hæðin bíður upp á möguleika, sérinngangur.

BÓKIÐ SKOÐUN á netfangið dora@eyjaeignir.is eða í síma 8611105

Nánari lýsing:

Forstofa : Flísar á gólfi, skápur, ný útidyrahurð

Stofa : Parket á gólfi, mikil lofthæð

Eldhús : Parket á gólfi, glæsileg ný Ikea innrétting, steinn á boðrum, ný tæki

Baðherbergi : Flísar í hólf og gólf, walk in sturta, innfelld blöndunartæki, innrétting, upphengt wc, opnanlegur gluggi, taj mahal steinn frá steinlausnum

Svefnherbergi : Parket á gólfi, skápur

Svefnherbergi : Parket á gólfi

Neðri hæð: Sérinngangur

þvottahús : steypt gólf

Svefnherbergi : Steypt gólf

Brunnur : steypt gólf, möguleiki á að gera að herbergi, nýr gluggi fylgir með þyrfti þá að saga fyrir

Bílskúr : Steypt gólf

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.

1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati. (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 3800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunnar, almennt 0.5 - 1.5 % af höfuðstól skuldabréfs, Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kauptilboði.

Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Eyjeignir fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.

Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.