Beykidalur 10

260 Reykjanesbær

Ásett verð: 49.900.000 kr.

Beykidalur 10
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
70 m²
Herbergi
2
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Byggingarár
2008
Fermetraverð
712.857 kr.

Lýsing

Stuðlaberg Fasteignasala kynnir í einkasölu 2ja herbergja 70fm endaíbúð á 2.hæð í tveggja hæða fjölbýli.

*Björt og skemmtileg íbúð með miklu útsýni og svalir í suður.

Forstofa er flísalögð þar er góður skápur.

Þvottahús er innaf forstofu, þar eru flísar á gólfi og innrétting með aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara.

Á baðherbergi eru flísar á gólfi og veggjum, þar er góð hvít innrétting, upphengt salerni og baðkar með sturtuaðstöðu.

Í eldhúsi er parket á gólfi, þar er góð hvít innrétting ásamt tækjum, ofn, helluborð og vifta.

Stofa er parketlögð og hurð er út á suðursvalir frá stofu. Eldhús og stofa liggja saman í opnu rými.

Svefnherbergi er parketlagt og þar er góður skápur.

*Eignin var reist árið 2008 en kláruð 2016.

*Möguleiki á að breyta þvottahúsi í herbergi.

*Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.

*Merkt bílastæði fylgir eigninni.

Nánari upplýsingar um eignina veitir:

Halldór Magnússon lfs.

s. 863-4495 / 420-4000

dori@studlaberg.is