Þjóðbraut 1

300 Akranes

Ásett verð: 122.900.000 kr.

Þjóðbraut 1
Tegund
Atvinnuhúsnæði
Stærð
248 m²
Herbergi
0
Svefnherbergi
0
Baðherbergi
1
Byggingarár
2008
Fermetraverð
495.565 kr.

Lýsing

Borgir fasteignasala kynnir eignina Þjóðbraut 1, 300 Akranes, nánar tiltekið eign merkt 01-03, fastanúmer 251-0327 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.

Eignin Þjóðbraut 1 er skráð sem hér segir hjá FMR: birt stærð 248.0 fm ásamt hlutdeild í sameign og auk þess 20 fm geymsla í kjallara sem er sameign með rými 01-01.

Eignin er með virðisaukaskattskvöð sem væntanlegur kaupandi þarf að yfirtaka.

Nánari upplýsingar veita:

Jóhanna Margrét Jóhannsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 8200788, tölvupóstur johanna@borgir.is.

Bjarklind Þór Löggiltur fasteignasali, í síma 6905123, tölvupostur bjarklind@borgir.is

Um er að ræða bjart og opið verslunar- skrifstofuhúsnæði á jarðhæð miðsvæðis á Akranesi. Húsnæðið er með gólfsíðum álgluggum og hátt til lofts. Gluggarnir eru opnaðir að innan með rafmagnsstýringu. Í loftunum er bæði gifs- og kerfisloft með led lýsingu að hluta og hallogen lýsingu að hluta og því mjög auðvelt að breyta lýsingu. Mjög auðvelt er að skipta húsnæðinu upp í fleiri hluta en í dag er þar starfrækt blóma- og gjafavöruverslun og því er sér kælir fyrir blómin. Innaf versluninni er kaffiaðstaða, salerni, lager með manngengnu háalofti og skrifstofa. Á gólfunum er steinteppi en flísar á blómasvæðinu, blómakæli og á lagernum. Hiti er í öllu gólfinu. Næg bílastæði eru fyrir framan húsnæðið.

Umhverfi:

Staðsett í glæsilegu íbúðarhverfi í uppbyggingu á Akranesi.

Stutt er í alhliða þjónustu til að mynda í leikskóla, sundlaug, íþróttamannvirki, banka og verslun ásamt því að að þjónustumiðstöð eldriborgara er í næsta húsi og svo mætti lengi telja.