Hafnarbraut 14C

200 Kópavogur

Ásett verð: 53.000.000 kr.

Hafnarbraut 14C
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
40,6 m²
Herbergi
1
Svefnherbergi
0
Baðherbergi
1
Byggingarár
2021
Fermetraverð
1.305.419 kr.

Lýsing

RE/MAX og Þorsteinn Yngvason, lögmaður / löggiltur fasteignasali, kynna í sölu fallega og nýlega stúdíóíbúð á annarri hæð að Hafnarbraut 14C í Kópavogi. Vel skipulögð íbúð með frábæru sjávarútsýni.

⭐️ Fallegt sjávarútsýni

⭐️ Vel skipulögð íbúð

Íbúðin skiptist í anddyri, baðherbergi og alrými sem skiptist í eldhús, stofu/borðstofu og svefnrými. Samkvæmt HMS er birt flatarmál eignarinnar 40,6 fm.

Nánari lýsing:

Anddyri: Parket á gólfi og fataskápur.

Baðherbergi: Flísar á gólfi og veggjum að hluta, upphengt salerni, sturta, baðinnrétting með speglaskáp og handklæðaofn. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara.

Alrými: Opið og bjart rými. Parket á gólfi. Rýmið skiptist í eldhús, stofu/borðstofu og svefnrými. Falleg innrétting með góðu skápaplássi. Spanhelluborð, bakaraofn og vaskur. Útgengt út á svalir sem snúa til austur. Frábært sjávarútsýni frá íbúðinni og svölum.

Húsið:

Hafnarbraut 14 var byggt árið 2021 og er fjölbýlishús á 5 hæðum á niðurgröfnum kjallara og skiptist í fjögur stiga og lyftuhús. Í kjallara er bílageymsla með 81 sérmerktum bílastæðum ásamt sameiginlegum hjóla- og vagnageymslum, tæknirýmum og sérgeymslum. Aðalinngangur byggingarinnar eru frá aðkomutorgi ofan á bílageymslu, þar sem staðsett eru 31 bílastæði.

Húsið er frábærlega vel staðsett á Kársnesinu. Spennandi hjóla-, hlaupa- og göngustígar við sjávarsíðuna, góðar samgönguleiðir auk þess sem ný brú frá Kársnesi yfir í miðbæ Reykjavíkur er fyrirhuguð. Svæðið í heild mun einkennast af nýjum íbúðum í bland við atvinnubyggð.

Allar frekari upplýsingar veitir Þorsteinn Yngvason, lögmaður / löggiltur fasteignasali, í síma 696 0226 eða thorsteinn@remax.is