Áshamar 4

221 Hafnarfjörður

Ásett verð: 62.900.000 kr.

Áshamar 4
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
71,1 m²
Herbergi
2
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Byggingarár
2024
Fermetraverð
884.669 kr.

Lýsing

Fasteignasalan TORG kynnir: Björt og falleg íbúð með virkilega rúmgóðum suður-svölum í nýlegu húsi við Áshamar 4 í Hafnarfirði. Eignin er skráð 71,1fm þar af 11,1fm geymsla og telur rúmgott svefnherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu, stofu,borðstofu og eldhús í opnu rými með útgengi á mjög rúmgóðar suður-svalir. Sérmerkt bílastæði fylgir eigninni. Allar nánari upplýsingar veitir Skúli Sigurz lgf. í síma 869-7014 eða skuli@fstorg.is

Nánari lýsing:

Anddyri er með góðum fataskáp,parket á gólfi.

Svefnherbergi er rúmgott með góðum fataskápum parket á gólfi.

Baðherbergi er með tengi fyrir þvottavél og þurrkara og góðri sturtu, flísar á gólfi og veggjum að hluta.

Eldhús er með góðu skápaplássi, innbyggðri uppþvottavél og ísskáp.

Stofa og borðstofa eru í opnu rými með eldhúsi, parket á gólfum.

Sér geymsla er á jarðhæð, skráð 11,1fm

Samantekt: Um ræðir góða eign í nýlega byggðu húsi, mikil uppbygging hefur verið í hverfinu og hefur ma. glænýr og flottur leikskóli risið upp í göngufæri. Allar nánari upplýsingar veitir Skúli Sigurz lgf. í síma 869-7014 eða skuli@fstorg.is