Silfurgata 39

340 Stykkishólmur

Ásett verð: 59.900.000 kr.

Silfurgata 39
Tegund
Einbýlishús
Stærð
134,1 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
1966
Fermetraverð
446.682 kr.

Lýsing

Trausti fasteignasala kynnir í einkasölu fallegt og vel skipulagt einbýli á frábærum stað við Silfurgötu 39 í Stykkishólmi. Staðsetning hússins er eins og áður sagði frábær, steinsnar frá miðbænum en samt mjög prívat og falin frá götu með einstaklega fallegum og grónum garði.. Húsið sem byggt er árið 1966 er fallegt og vandað 102,1fm steinsteypt einbýlishús ásamt 32,0 fm.bílskúr samtals 134,1fm.

Bókaðu skoðun hjá Bjössa því hér er sjón sannarlega sögu ríkari.

Eignin skiptist þannig:

Forstofa: Flísar á gólfi og fataskápuri.

Stofa og borðstofa: Parket á gólfum. Rúmgóðar og bjartar stofur með stórum gluggum.

Svefnherbergishol: Parket á gólfi.

Baðherbergi: Nýlega endurnýjað á vandaðan máta. Upphengt salerni og walk in sturta með gler skilrúmi. Flísar á gólfi.

Herbergi I: Bjart og fallegt hjónaherbergi. Parket á gólfi.

Herbergi II: Rúmgott og bjart. Parket á gólfi.

Eldhús: Nýleg hvít innrétting með ágætis skápaplássi og nýlegum tækjum. Góður eldhúskrókur. Parket á gólfi.

Þvottahús og búr/geymsla: Vaskur og tengi fyrir þvottamél. Steypt gólf. Útgengt.

Bílskúr: Rúmgóður með geymsluhillum Sjálfvirkur hurðaopnari. Afstúkuð geymsla inn af skúr.

Annað:

Húsið virðist hafa notið góðs viðhalds í gegnum tíðina og ber þess glögg merki.

Gróðurhús er í garðinum.

Skjógóður og sólríkur sólpallur er út frá bílskúrnum.

Hér er á ferð vel skipulagt einbýli og frábært tækifæri til þess að eignast vel staðsetta og vandaða eign í Hólminum fagra.

Nánari upplýsingar veitir Þorbjörn Geir Ólafsson löggiltur fasteignasali, í síma 895-5198, tölvupóstur bjossi@trausti.is