Skagabraut 82

251 Garður

Ásett verð: 82.900.000 kr.

Skagabraut 82
Tegund
Einbýlishús
Stærð
228,4 m²
Herbergi
6
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
1
Byggingarár
1935
Fermetraverð
362.960 kr.

Lýsing

ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu Skagabraut 82, Grund, 251 Garði - einstaklega skemmtilega eign á rúmgóðu eignarlandi við Garðskaga.

Hér er sannkölluð sveit í bæ, þar sem rúmgott eignarland, nálægð við sjóinn og stórbrotið útsýni skapa einstaka umgjörð. Eignin stendur skammt frá Garðskagavita og sjávarsíðuna, með víðsýni til allra átta, meðal annars í átt að Snæfellsjökli og yfir glæsilegan fjallahringinn.

Stutt er niður að sjó og í göngufæri við fallega sandströnd. Garðskagi er þekktur fyrir stórbrotið sólarlag, norðurljósadýrð, fjölbreytt fuglalíf og einstaka náttúrufegurð. Þrátt fyrir friðsælt og sveitalegt yfirbragð er stutt í alla helstu þjónustu, skóla, leikskóla og sundmiðstöð.

Nánari upplýsingar veitir Elín Frímannsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 8674885, tölvupóstur elin@allt.is.

Nánari lýsing:

Húsið er á þremur hæðum; kjallara, miðhæð og risi. Fasteignin er skráð samkvæmt fasteignaskrá samtals 228,0 m² , þar af er 44,0 m² sérgeymsla á lóð. Íbúðarhlutinn skiptist samkvæmt fasteignaskrá þannig að kjallari er 70,4 m², miðhæð 65,4 m² og ris 48,6 m².

Innangengt er inn á miðhæð og kjallara og opnað hefur verið upp í risið frá miðhæð. Árið 1994 var kjallarinn steyptur og eldri hluti hússins hýfður á kjallarann og viðbygging byggð, sem hýsir andyri, búr og salerni.

Kjallari

Í kjallara eru þrjú björt svefnherbergi, hol við stiga, fataherbergi, baðherbergi ásamt þvotta- og tæknirými.

Tveir útgangar eru úr kjallara, annars vegar úr þvotta- og tæknirými til vesturs og hins vegar úr svefnherbergi til austurs. Innveggir í kjallara eru gipsklæddir.

Miðhæð

Á miðhæð er anddyri, salerni, geymsla, eldhús og rúmgóð L-laga stofa.

Nýrri hluti hæðarinnar, sem kom til þegar húsið var flutt, er með steyptri gólfplötu og þar eru anddyri, salerni og geymsla. Eldri hluti hæðarinnar skiptist í eldhús og stofu.

Með eigninni fylgir gegnheilt parket sem ætlað er á miðhæð hússins.

Ris

Rishæðin er rúmgott og opið rými með tveimur veglegum kvistum. Risið hefur verið einangrað og loft klædd, bæta mætti upphitun en einn ofn er þar.

Úr risinu er gengið út á svalir/verönd yfir viðbyggingu hússins sem snýr til vesturs í átt að Garðskagafjöru. Þar er einstaklega fallegt útsýni og góð aðstaða til að njóta kvöldsólar og sjávarútsýnisins.

Endurbætur og framkvæmdir

Töluverðar endurbætur hafa verið gerðar á eigninni. Samkvæmt ástandsyfirlýsingu seljanda hafa frárennslislagnir verið endurnýjaðar. Vatnslagnir hafa að mestu verið endurnýjaðar, þó eldri ofna lagnir séu enn í stofu, og raflagnir hafa verið endurnýjaðar að undanskildum tenglum í stofu.

Á árunum 2018-2019 var sett ál á þakið. Árið 2022 voru allir gluggar yfirfarnir og samkvæmt seljanda er um 80% af gleri nýtt. Gluggar voru málaðir að utan árið 2024.

Á árunum 2022-2023 var húsið allt klætt að utan með áli og einangrað með steinull. Jafnframt voru allar þakrennur endurnýjaðar. Svalir voru smíðaðar á árunum 2024-2025 og árið 2026 var ljósleiðari lagður í húsið.

Skemma/bílgeymsla og frekari uppbygging

Teikningar að nýrri skemmu fylgja með eigninni, en fyrirhugað er að hún rísi þar sem núverandi geymsla stendur. Búið er að steypa sökkul fyrir skemmuna og mikið magn byggingarefnis fylgir einnig með.

Þetta, ásamt rúmgóðu eignarlandinu, skapar áhugaverða möguleika fyrir kaupanda sem vill halda áfram uppbyggingu eignarinnar.

Helstu kostir eignarinnar:

Rúmgott eignarland (nákvæm stærð liggur ekki fyrir, land óhnitsett)

Einstök staðsetning við Garðskaga og sjávarsíðuna

Víðáttumikið útsýni til allra átta

Stutt í fallega sandströnd

Þrjú svefnherbergi

Rúmgott ris með tveimur kvistum

Svalir/verönd til vesturs með fallegu útsýni

44 m² sérgeymsla á lóð

Húsið klætt að utan með áli og einangrað með steinull

Endurnýjaðar þakrennur

Mikið endurnýjaðar lagnir og rafmagn

Stór hluti glers endurnýjaður

Ljósleiðari

Gegnheilt parket fyrir miðhæð fylgir með

Teikningar að fyrirhugaðri skemmu fylgja

Búið að steypa sökkul fyrir skemmuna og mikið magn byggingarefnis fylgir með

Einstök náttúra, fuglalíf, sólarlag og norðurljós

Sveit í bæ en jafnframt stutt í alla helstu þjónustu

Skagabraut 82 er einstök eign fyrir þá sem vilja njóta rýmis, náttúru og nálægðar við sjóinn án þess að fórna nálægð við þjónustu. Rúmgott eignarland, fallegt útsýni, umfangsmiklar endurbætur og möguleikar til frekari uppbyggingar gera eignina að sérstaklega áhugaverðum kosti á þessum fallega stað við Garðskaga.

Eignarlandið hefur ekki verið hnitsett né merkjalýst og liggur nákvæm stærð þess því ekki fyrir. Samkvæmt skráningu hjá HMS er það 3.000 m², en eldri heimildir benda til að raunstærð geti verið önnur eða nær 8000 m².

Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – skráðu eignina þín í dag og tryggðu þér forskotið.

ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:

Hafnargötu 62, 230 Reykjanesbæ - Reykjavíkurveg 66, 220 Hafnarfirði

Kostnaður kaupanda:

1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.

2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.

3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.

4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.

5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upp…