Heiðarbraut 39

300 Akranes

Ásett verð: 119.900.000 kr.

Heiðarbraut 39
Tegund
Einbýlishús
Stærð
234 m²
Herbergi
7
Svefnherbergi
5
Baðherbergi
2
Byggingarár
1942
Fermetraverð
512.393 kr.

Lýsing

Gummi Júl & Erling Proppé ásamt REMAX kynna: Mjög svo fallegt, vel viðhaldið og vel staðsett einbýlishús á 2.hæðum með fallegum sólpalli í suður og stórum bílskúr með studíóíbúð.

Allar nánari upplýsingar veita: Guðmundur Júlíusson lgf. // 858-7410 // gj@remax.is & Erling Proppé lgf. // 690-1300 // erling@remax.is

Eignin er skráð skv. FMR. 234 m2 þar af er bílskúr 67.5 m2

Nánari lýsing:

Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu sem og borðstofu. Hjónaherbergi, 3 rúmgóð svefnherberbergi, baðherbergi og gesta salerni. Stórt þvottahús. Sér stúdíó íbúð/herbergi og stóran bílskúr. Góðar suðursvalir sem og suður sólpallur með heitum potti. Kofi á lóð.

Forstofa er rúmgóð með flísum á gólfi og góðum fataskápum. Góð lofthæð og hiti í gólfi.

- Gengið er upp á 2.hæð úr forstofu upp viðar tröppur sem og niður á 1.hæð.

2.hæð:

Gestasalerni: Vaskur og wc

Eldhús: Eldhús með fallegri hvítri innréttingu og nýjum tækjum. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél. Flísar á gólfi og góður borðkrókur. Innaf eldhúsi er gott búr. Úr eldhúsi er farið upp í gott og rúmgott geymsluris (kalt loft).

Sólstofa: Úr eldhúsi er gengið niður í sólstofu og þaðan út á góðar suður svalir og niður á sólpall.

Stofa/borðstofa: Rúmgóð stofa sem og borðstofa með parketi gólfi.

Hjónaherbergi: Parket á gólfi og góður fataskápur.

1.hæð:

Svefnherbergi I: Stórt herbergi með parket á gólfi og fataskáp.

Svefnherbergi II: Stórt herbergi með parket á gólfi og fataskáp.

Svefnherbergi III: Barnaherbergi með parket á gólfi. Hiti í gólfi.

Baðherbergi : Rúmgott flísalagt bæði gólf og veggir. Falleg hvít innrétting, baðkar og sturtuklefi. Upphengd salerni og handklæða ofan. Hiti í gólfi.

Þvottahús: Nýlega uppgert þvottahús með flísum á gólfi og góðum innréttingum. En þaðan er útgangur út á baklóð. Við útgang í þvottahúsi er lítil útigeymsla.

Bílskúr: 67.5fm bílskúr sem er hluta til með ca 20 fm herbergi/stúdíó íbúð. Flísar á gólfi og baðherbergi innan herbergi. Sturta og wc.

Bílskúrinn sjálfur er rúmgóður með flísum á gólfi og geymsluloft.

Bílskúrinn byggður árið 2010. Hiti í gólfi í bílskúr.

Eignin hefur fengið gott og mikið viðhald sem og endurbætur síðustu ár sbr. viðhaldssögu núverandi og fyrrverandi eiganda:

2024 - Sauna sett upp á sólpall

2024 - 3 fasa rafmagn tekið inn fyrir hleðslustöð og saunu

2024 - Skipt um álbáru á þaki ásamt pappa

2024 - Þakkantur endurnýjaður með álklæðningu.

2022 - Sólpallur stækkaður töluvert um ca. 130m2

2020 - Lagnir myndaðar - frárennsli er úr PVC plasti, metið í lagi.

2020 - ný eldhúsinnrétting

2019 - ný þvottahúsinnrétting

2019 - Skipt um öll gler í húsinu

2018 - 2019 -heitur pottur og skjólveggir hjá húsi og hjá palli

2019 - stigi settur frá svölum niður á pall

2017 - myndaðar lagnir, frárennsli er úr PVC plasti, í góðu lagi.

2016 - baðherbergi endurnýjað ,hiti í gólfi.

2016 - öll gólfefni nema parket á efri hæð

2016 - sett ný þrep í stiga og glerhandrið sett.

2015 - pallur settur og hellulagt

2015 - nýtt parket á stofu og svefnherbergi á efri hæð, skápur í svefnherbergi.

2010-2012 - Bílskúr byggður.

2005 - klæðning undir svalir

2000 - handrið sett á svalir

1999 var nýbúið að gera eignina upp sbr, skipta um klæðningu, rafmagn, hitalagnir, gólfefni, gluggar, þak. Skipt um allt nema steynsteypu

Allar nánari upplýsingar veitir:

Guðmundur Júlíusson lgf. // 858-7410 // gj@remax.is

Erling Proppé lgf. // 690-1300 // erling@remax.is

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupanna :

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.

2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.

3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl.

4. Lántökugjald lánastofnunar - breytilegt, sjá gjaldskrá á heimasíðum lánastofnana.

5. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk.