Grænakinn 17

220 Hafnarfjörður

Ásett verð: 129.900.000 kr.

Grænakinn 17
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
173,699998474121 m²
Herbergi
8
Svefnherbergi
5
Baðherbergi
3
Byggingarár
1952
Fermetraverð
747.841 kr.

Lýsing

173,7 fm mikið endurnýjuð miðhæð og kjallari ásamt bílskúr í tvíbýli við Grænukinn 17, 220 Hafnarfirði.

Búið er að skipta eigninni í þrjár íbúðir í dag sem eru allar í útleigu. Skv. HMS skiptist eignin í 72,0 fm efri hæð, 67,6 fm kjallara og 34,1 fm bílskúr, samtals 173,7 fm.

Nánari lýsing: Forstofa. Baðherbergi með hvítri innréttingu, baðkari og tengi fyrir þvottavél. Tvö herbergi eru á hæðinni, annað með útg. á svalir. Rúmgóð og björt stofa/borðstofa. Eldhús, hvítri innréttingu, innbyggð uppþvottavél, ofn, helluborð og vifta. Stigagati frá stofu sem sést á myndum hefur verið lokað en einfalt að opna aftur.

Íbúð á neðri hæð: Tvö herbergi eru á hæðinni, stofa og eldhús. Baðherbergi með sturtu og hvítri innréttingu, stæði fyrir þvottavél og þurrkara.

Bílskúrinn er innréttaður sem vinnustudíó með tveimur vinnurýmum, eldhúsi og góðu baðherbergi.

Eignin er í útleigu í dag með virkilega góðum leigutekjum.

Frábær staðsetning nálægt miðbæ Hafnarfjarðar þar sem stutt er í alla helstu þjónustu.

Skv. seljanda hafa eftirfarandi framkvæmdir farið fram á síðustu árum:

- Harðparket endurnýjað

- Eldhúsinnréttingar og tæki í öllum eldhúsum endurnýjað

- Innihurðir endurnýjaðar

- Baðherbergi á neðri hæð endurnýjað

- Allar íbúðir málaðar að innan

Nánari upplýsingar veitir Arnór Daði Eiríksson löggiltur fasteignasali í síma 777-0939 / arnor@as.is og Aron Freyr Eiríksson löggiltur fasteignasali í s. 772-7376 / aron@as.is.

Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.

[link]

[link]

[link]